Mynd af staðháttum á Eyjafjallajökli

eyjafjallajokull_m_skyringum_980982.jpg
Nauðsynlegt er að lesendur geri sér grein fyrir staðháttum á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli.
 
Meðfylgjandi mynd tók ég traustataki á vef Jarðvísindastofnunar. Eyjólfur Magnússon tók hana á flugi yfir Fimmvörðuhálsi nokkrum dögum fyrir gosið og sést á henni afstaðan. Bið Eyjólf velvirðingar á hnupli myndarinnar.

Á myndina hef ég merkt gosstaðinn á Fimmvörðuhálsi. Hann er rétt vestan við gönguleiðina sem ég hef merkt með punktalínu.

Um tíu kílómetrar eru af Fimmvörðuhálsi upp að Hámundi, sem er hæsti hluti jökulsins. Hann er hluti gígrimans. Það er líka Innri-Skolti, Ytri-Skotli (ekki merktur á myndinni) og Guðnasteinn.

Sjálfur er gígurinn gríðarlega stór og skarð er í hann milli Innra-Skolts og Ytra-Skolts og fellur þar niður Gígjökull eða Falljökull. Fyrir neðan hann er Jökulsárlónið sem margir kannast við enda liggur vegurinn inn í Þórsmörk og Bása fram hjá því og raunar yfir ánna sem úr því rennur. 

Samkvæmt jarðskjálftakorti Veðurstofunnar eru jarðskjálftarnir undir Hámundi. Áður höfðu jarðskjálftarnir verið ofan við Steinsholtsjökul. Hann sést illa á myndinni en er aðeins austan við Gígjökul.


mbl.is Rýming gengur vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband