Vantar gleggri upplýsingar fyrir almenning

aaa_979659.jpgSéu jarðskjálftarnir að læðast austur yfir Fimmvörðuháls þá hlýtur það einfaldlega að að þýða að kvikuinnskotin eru orðin fleiri og jólatréið fyrir neðan er miklu umfangsmeira en látið er í skína.

Á meðfylgjandi þversniði er þetta fræga jólatré og kvikuinnskotið sem hljóp út undan sér og bauð góðan daginn á Fimmvörðuhálsi í stað þess að bresta út ofan við Steinsholtsjökul norðan í Eyjafjallajökli. Eru nú fleiri innskot á austurleið samkvæmt Haraldi Hólmara og valda þau óróanum?

Við höfum nokkrir verið að pæla í þessu þversniði, en kunnum sárafátt fyrir okkur í jarðfræði. Raunar stendur þversniðið þvert í okkur. Niðurstaðan er sú að það yrði ansans ári gott ef hægt væri að fá þversniðið með norður suður stefnu. Þá kæmi kannski eitthvað í ljós sem vert væri að tala um. 

Eða hvað segja jarðfræðingarnir? 


mbl.is Jarðskjálftar læðast austur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Sé það rétt sem Haraldur gefur í skyn að kvikuinnskot til austurs valdi þessu þá blasir við stórhætta sem sést ágætlega á skíringarmyndinni, að innskot nái að snerta súra gúlinn undir Goðabungu.  Þá verður hvellsuða í þessum blessaða gúl sem endar sennilega í plínísku sprengigosi svipuðu og í Öskju 1875.  Núlifandi kynslóðir á Íslandi hafa aldrei séð neitt sem líkist slíkum hamförum.

Óskar, 9.4.2010 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband