Viðræður eru viðræður með eða án formanna
27.1.2009 | 10:30
Viðræður milli flokkanna hófust í gærkvöldi en heimildir Morgunblaðsins herma að fulltrúar þeirra hafi rætt óformlega saman síðustu daga um mögulegt samstarf ef fyrra ríkisstjórnarsamstarf héldi ekki.
Formaður Vinstri grænna hefur komið fram í fjölmiðlum og svarið að hann hafi ekki staðið í viðræðum við Samfylkinguna. Sama hefur formaður Samfylkingarinnar. Nú kemur fram að viðræður hafa farið fram á milli flokkanna þó formennirnir hafi verið fjarri því góða gamni.
Annað hvort er flokkur í viðræðum eða ekki. Skiptir engu þó formenn séu ekki með í leiknum. Viðræður eru viðræður jafnvel þó þær séu kallaðar þreifingar, spjall eða eitthvað annað.
Köllum bara hlutina sínu rétta nafni, ekki fara undan í flæmingi eða skýla sér á bak við einhver önnur orð eða hugtök. Vinstri grænir voru í viðræðum við Samfylkinguna meðan síðarnefndi flokkurinn var í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Punktur.
![]() |
Boðuð á fund forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Verða kosningar í vor?
27.1.2009 | 09:39
Er Ágúst Ólafur Ágútsson viss um að það verði kosningar í vor? Enn hefur ekkert verið opinberlega ákveðið um kosningar.
Verði kosningar þarf að rjúfa jafnframt þing. Þar af leiðandi verður hugsanleg minnihlutastjórn VG og Samfylkingar aðeins starfandi í tvo til þrjá mánuði og það án þings. Úrræði ríkisstjórnarinnar vera því afar takmörkuð og raunar má hún ekkert gera, aðeins halda í horfinu.
Það er því ótímabært fyrir Ágúst Ólaf að fara að leggja drög að námi í útlöndum í haust.
![]() |
Ágúst Ólafur hættir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samfylkingin; úr stórum meirihluta í minnihlutastjórn
27.1.2009 | 09:21
Það er alveg hreint ótrúlegt að ríkisstjórn með tíu þingmanna meirihluta á Alþingi skuli hafa lagt upp laupanna. Í Morgunblaðinu í morgun eru birt skilyrði" Samfylkingarinnar fyrir áframhaldandi samstarfi.
Ekkert af þeim er hefði átt að vera ásteitingarsteinn millli flokkanna - nema þetta eina. Átján manna þingflokkurinn vildi fá forsætisráðuneytið. Tuttugu og fimm manna þingflokknum fannst nóg að skipting ráðherraembætta væri jöfn þrátt fyrir stærðarmun.
Sá grunur læðist að flestum hugsandi mönnum að þetta með verkstjóravaldið hafi einfaldlega verið fyrirfram tilbúin ástæða til að hætta í ríkisstjórn. Hvað gat Samfylkingin gert annað? Einstakir hlutar flokksins höfðu ályktað gegn ríkisstjórnarþátttöku með Sjálfstæðisflokknum, andstaða þingmanna, varaþingmanna, ekki síst nokkurra ráðherra var frá upphafi afar áberandi.
Mesta undrun vekur þó stríðið innan þingflokksins og milli ráðherra flokksins. Össur hafnaði því ótal sinnum að skjólstæðingur hans, viðskiptaráðherrann, segði af sér. Össur mun einnig hafa ráðið mestu um að ekki var farið út í stólaskipti og hafnaði því t.d. að embætti fjármálaráðherra kæmi í hlut Samfylkingarinnar. Ráð Össurar var efa þjóðráð fyrir flokkinn enda embættið beiskur kaleikur sem gagnast um þessar mundir lítið í vinsældaleiknum en yrði þeim mun meira til vandræða.
Eftir að hafa hafnað stólaskiptum var eiginlega ekkert annað eftir en að fylgja kröfu VG hluta Samfylkingarinnar og finna eitthvað til að láta brjóta á. Heyrðu, við gerum bara kröfu til að Jóhanna verði forsætisráðherra, sagði Össur í tveggja manna tali við Ingibjörgu Sólrúnu, svo hátt að allir máttu heyra. Menn hlógu fyrst en skildu svo. Hugmyndin var svo fáránleg að hún gat eiginlega gengið upp.
Og þannig endaði fyrsta ríkisstjórnarþátttaka Samfylkingarinnar. Úthaldið brást flokknum þegar aðstæður breyttust. Krepputímar henta ekki í vinsældaleikinn.
Eftir sitjum við Sjálfstæðismenn. Kannski erum við sárir út í Samfylkinguna fyrir að hafa ekki staðið í lappirnar og reynt að vinna þjóðinni gagn í sterkum meirihluta á Alþingi. Kannski erum við fúlir, leiðir eða eitthvað annað. Eftir stendur undrunin yfir þessum skrýtna flokki sem telur sóma sinn meiri í því að hlaupast frá borði í miðri kreppu og velja þann kost að fara í minnihlutstjórn.
![]() |
Samfylkingin bugaðist" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |