Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2021
Erfitt á ađ vera ađ breyta stjórnarkránni
20.7.2021 | 11:13
Viđ ţinglok rifjuđu fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Flokks fólksins upp breytingartillögu, sem lögđ var fram viđ stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur í vetur. Hún felur í sér ađ til ađ breyta stjórnarskrá nćgi ađ einfaldur meirihluti ţings veiti samţykki sitt og í kjölfariđ fari fram ţjóđaratkvćđagreiđsla ţar sem hvorki verđi gerđ krafa um lágmarksţátttöku né lágmarksstuđning viđ breytinguna.
Svo skrifar Birgir Ármannsson alţingismađur Sjálfstćđisflokksins í fróđlegri grein í Morgunblađi dagsins. Í henni rćđir hann um stjórnarskrána okkar og vitnar til Kristrúnar Heimisdóttur og greinar hennar í Tímariti lögrćđinga sem út kom fyrir skömmu.
Birgir bendir réttilega á ađ erfitt eigi ađ vera ađ breyta stjórnarskránni. Allir hugsandi menn vita ađ svo ţarf ađ vera. Nćg eru dćmin um vanhugsađar lagasetningar og breytingar hér á landi og annars stađar.
Ađ sögn Birgis eru mjög ströng skilyrđi fyrir stjórnarskrárbreytingum á Norđurlöndunum. Ţangađ vilja margir sćkja dćmi ţegar ţađ hentar en ekki ţegar talađ er um stjórnarskrána.
Hér er stutt upptalning úr grein Birgis.
Danmörk:
- Samţykki tveggja ţinga međ kosningum á milli
- Ţjóđaratkvćđagreiđsla
- Meirihluti ţeirra sem atkvćđi greiđir ţarf ađ samţykkja
- Ţátttakan sé ađ minnsta kosti 40% ţeirra sem eru á kjörskrá
Noregur:
- Samţykki tveggja ţinga međ kosningum á milli
- Viđ endanlega afgreiđslu ţarf samţykki 60% ţingmanna ađ styđja breytingarnar
Finnland:
- Samţykki tveggja ţinga međ kosningum á milli
- Viđ endanlega afgreiđslu ţarf 60% ţingmanna ađ styđja breytingarnar
Svíţjóđ:
- Samţykki tveggja ţinga međ kosningum á milli
- Hćgt ađ óska eftir ţjóđatkvćđagreiđslu eftir fyrra samţykkiđ, en niđurstađa hennar er ţó ekki endanleg eđa bindandi nema meirihluti leggist gegn breytingunni. Ef niđurstađan er hins vegar jákvćđ kemur máliđ aftur til kasta ţingsins.
Ísland:
- Samţykki tveggja ţinga međ kosningum á milli
- Sé breytingin samţykkt óbreytt á nýju ţingi öđlast hún gildi.
Af ţessu má sjá ađ skilyrđi fyrir stjórnarskrárbreytinum eru síst strangari hér á landi en á hinum Norđurlöndunum.
Vel má ímynda sér hvađ gćti gerst ef auđvelt vćri ađ breyta stjórnarskránni nú á ţeim tímum ţegar alls kyns pópúlistahreyfingar vađa upp, falsfréttir í samfélagsmiđlum og víđar og ekki síst snöggsođnar breytingar sem viđ fyrstu sýn virđast sanngjarnar. Afleiđingarnar gćtu orđiđ hrođalegar fyrir lýđrćđiđ.
Breytum ekki stjórnarskránni nema ađ vel grunduđ ráđi. Látum ekki Pírata, Flokk fólksins eđa Samfylkinga ráđa ferđinni.