Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
Hrúga af hrauni safnast upp í lónstæðinu
1.5.2010 | 09:24
Dálítil merki um hraunrennsli frá eldstöðinni má sjá fyrir framan útfall bráðvatnsins fyrir framan Gígjökul. Þar á gamla Lónsstæðinu fyrir framan gljúfrið hefur eitthvað safnast saman. Að öllum líkindum eru þetta hraunbrot sem vatnið hefur borið niður.
Þetta má sjá vel á efstu myndinni sem tekin er af vef Vodafone um klukkan 5 í morgun.
Til samanburðar er svo mynd frá því kl. 9 í morgun.
Báðar myndirnar hafa verið stækkaðar talsvert til að hægt sé að greina smærri atriði .

Og hvað sýna þær okkur? Um það veit ég minnst en kannski er eftirfarandi líklegt.
- Hraunið fyrir framan gljúfrið breytir vatnsrennslinu.
- Frá kl. 5 hafa myndast svartir taumar niður frá gljúfrinu. Þeir eru a.m.k. tveir. Þeir eru neðan undan hraunhrúgunni og liggja í sveig með vatnsstefnunni. Vatnið dregur með sér hraunbrot sem hlaðast upp ásamt öðru efni skjólmegin við hraunhrúguna og mynda þessa tauma.
- Eftir því sem meira hraun fellur niður má gera ráð fyrir að vatnið leiti framhjá hrúgunni, festi sig jafnvel í ákveðnum farvegi og grafi sig niður. Þarf af leiðandi má gera ráð fyrir að vatnið moki jafnvel enn meiri leir, möl og ís út á Markarfljótsaura en það hefur gert lengi.
![]() |
Virkni svipuð og að undanförnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)