Verður Ísland gert gjaldþrota?

Maður nokkur skuldaði Landsbankanum eina milljón króna. Hann greiddi ekki á gjalddaga og ekki heldur síðar.

Bankinn er með tuttugu manna lögfræðideild. Hún gekk eins hart fram og hægt var, hirtu hverja krónu af manninum og gerðu hann gjaldþrota.

Ef marka má alþjóðalög gerðu íslensk stjórnvöld upp á milli kröfuhafa íslensku bankana. Kröfuhafarnir ætla að láta reyna á rétt sinn.

Er einhver hissa? 


mbl.is Verið að höfða mál gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Sigurður,

Nei, ég held það þurfi enginn að vera undrandi á þessu.  Íslensku bankarnir söfnuðu óheyrilegum skuldum erlendis og mér finnst ekki skrýtið þó lánardrottnar þeirra vilji fá eitthvað í stað þeirra þúsunda milljarða bankarnir fengu lánaða.  Ég er bara hræddur um að IceSave verði eins og smádropi í hafið þegar þessar skuldir falla á ríkisstjóð.

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 19.8.2009 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband