Mikið vildi ég að Kolkrabbinn væri kominn aftur
14.8.2009 | 16:18
Ég man þá tíma er Eimskip var burðarás í íslensku atvinnulífi. Ég man er Flugleiðir voru burðarás í íslensku atvinnulífi. Mér eru mörg önnur fyrirtæki ofarlega í minni, til dæmis Heklu hf., Sjóvá hf, Símann og fleiri og fleiri fyrirtæki.
Fyrir tíma útrásarvíkinganna gagnrýndu vinstri menn eigendur margra þessara fyrirtækja og nefndu Kolkrabbann og var þá átt við að þeir tengdust og voru líklegast í Sjálfstæðisflokknum.
Þetta þóttu afar vond fyrirtæki og ekki síður stjórnendur þeirra. Að minnsta kosti var það mat margra sem teljast nú málsmetandi.
Hvað sem þeirri gagnrýni líður voru fyrirtækin stöndug, lögðu metnað sinn í að vera vinnuveitendur, hugsað var um störfin og auðvitað reynt að skila hagnaði. Stundum gekk það, stundum ekki. Eigendurnir mergsugu þau ekki. Þeir fundu til ábyrgðar sinnar gagnvart samfélaginu, gagnvart viðskiptavinum sínum og ekki síst starfsmönnum.
Nú eru breyttir tímar. Kolkrabbinn er löngu liðinn, sem betur fer, segir gamla vinstra liðið enn og aftur.
Hvað fengum við í staðinn?
Eimskip er í nauðsamningum, Flugleiðir sem heitir Icelandair venga þess að íslenskt mál þykir ekki nógu fínt, er komið í eigu bankanna, sama er með Sjóvá. Síminn er í eigu þessa fyrirtækis sem enginn venjulegur maður veit hvað gerir en heitir Exista af því að íslenska er ekki nógu fín fyrir þessa gæja.
Og hvað eig þessi fyrirtæki öll sammerkt? Jú þau eru á hvínandi hausnum nema ef til vill Síminn af því að ég og þú greiðum svo há afnotagjöld fyrir síma, net og sjónvarp.
Mikið vildi ég að Kolkrabbinn væri kominn aftur. Þeir sem stóðu að honum iðkuðu þó mannlegan kapítalisma. Hann skil ég.
Allir kröfuhafar samþykktu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mikið rosalega er ég þér sammála -
Nöfn eins og Hörður Sigurgestsson - Eimskip
Sigurður - Flugleiðum -
Sigfús í Heklu
o.fl.o.fl
hvar eru þessir heiðursmenn í dag?
Ólafur Ingi Hrólfsson, 14.8.2009 kl. 16:44
Þeir eru að telja peninga uppúr brúnu eftirlaunauslögunum...
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 14.8.2009 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.