Eru allar bjargir bannaðar gegn Bretum?

Maður skyldi það svo sem þegar lögfræðingar frá Bretlandi ráðlögðu ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að reyna ekki að höfða mál gegn breska ríkinu. Það hefði orðið mjög dýr, afar langvinnt og niðurstaðan langt frá því að vera borðliggjandi.

Formaður VG sagðist varla eiga til eitt einasta orð yfir þessari ákvörðun, svo vonsvikinn var hann. Svo gerist það að þegar hann sjálfur er kominn í ríkisstjórn er hætt við að stefna Bretum fyrir mannréttindastólnum. Þetta tilkynnti viðskiptaráðherra í erlendum fjölmiðlum en ekkert fréttist hérna heima.

Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur. Eitthvað hlýtur að standa gegn þessum dæmalausa gerningi bresku ríkisstjórnarinnar gegn Íslendingum. Nema því aðeins að Bretar hafi hótað eða lofað einhverju sem minnihlutaríkisstjórnin hefur ekki enn viljað upplýsa um.

Eða eru okkur allar bjargir bannaðar gegn Bretum.


mbl.is Veldur miklum vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Frá þeirri stundu þegar Geir Haarde sagði að ekki yrði höfða mál í Bretlandi var kristaltært líka að það var tóm blekking hjá honum að tala um beina málshöfðun fyrir mannréttindadómsstól Evrópu, því það er ekki hægt án undangenginna dómsmála í hinu kærða ríki.

Málshöfðun í Bretlandi var því forsenda fyrir því að hægt væri að stefna Bretum fyrir Mannréttindadómsstóli Evrópu - Þegar Geir ákvað að gera það ekki var úti um þennan möguleika líka.

Helgi Jóhann Hauksson, 25.2.2009 kl. 14:49

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þakka þér fyrir innlitið, Helgi.

Breskir lögmenn vöruðu eindregið gegn málshöfðun. Af hverju segirðu að það hafi verið „blekking“?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 25.2.2009 kl. 14:53

3 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Blekkingin er að segjast ætla með málið fyrir mannréttindadómsstól Evrópu þar sem það er ekki hægt nema öll réttarúrræði hafi áður verði tæmd í Bretlandi.

Helgi Jóhann Hauksson, 25.2.2009 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband