Þorir Samfylkingin ekki að taka óvinsælar ákvarðanir?

Lúðvík Bergvinsson þarf að tala skýrar. Hann getur ekki fullyrt að Samfylkingin hafi talað fyrir daufum eyrum Sjáflstæðisflokksins. Hann verður að nefna mikilvægustu tillögurnar sem samstarfsflokkurinn hafnaði.

Það dugar ekki að skjóta sér á bak við þá fullyrðingu að verkstjórnin í Seðlabankanum sé í ólagi. Það er hún ekki. Menn geta haft hverjar þær skoðanir sem finnast um Seðlabankan fyrir hrun en síðan er ekkert upp á bankann að sakast né heldur Davíð Oddson.

Öllum ætti að vera ljóst hvað þarf að gera. Fjölmargt af því mun ekki vera í því fólgið að skapa komandi ríkisstjórn vinsældir. Stóra spurningin er þessi: Hver er tilbúinn til að taka óvinsælu ákvarðanirnar. Getur verið að Samfylkingin þori ekki?


mbl.is Verkstjórnin var ekki í lagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Afskaplega sammála þér. 

Davíð er helsta hatursefni Samfylkingarinnar.  Ég tel eftirá að Geir hafi gert mistök með að leita til hennar um stjórnarsamstarf í upphafi.

Ég vil fá Davíð aftur sem forsætisráðherra - takk fyrir.

Sigurður Sigurðsson, 26.1.2009 kl. 14:36

2 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

Heyr, heyr

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 26.1.2009 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband