Það sem einu sinni sameinaði þá ...

Nú eru þeir komnir í hár saman þessir kallar sem sátu við kjötkatlana og yljuðu sér og sínum. Líklegast verður athyglisvert að sjá hvernig flokkur þessara vösku manna leysist upp í innbyrðis átökum. Má þá gera ráð fyrir að hnútum verði kastað þvers og kruss yfir gamla allsnægtaborðið sem fyrrum svignaði undan milljörðunum.

Það sem einu sinni sameinaði þá verður nú til að sundra þeim.

Við, sem aldrei náðum að komast að borðinu, hvað þá að vera í þeirri öfundsverðu aðstöðu að geta tínt upp molana sem hrukku af því, réttum sem snöggvast út beygðum bökunum og glottum hvert til annars. Okkur er kannski ekki alls varnað. Við nutum ekki þenslunnar en fáum við altént að njóta uppgjörsins í kreppunni. Alltaf má finna eitthvað broslegt í tilverunni.


mbl.is Eggert í mál við Björgólf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband