Frelsandi að kasta snjóbolta - Hvað næst?

Guðjón Heiðar Valgarðsson, mótmælandi, segir að það hafi verið frelsandi að kasta snjóbolta í andlitið á Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni Baugs, í dag. Svona segir á fréttavefnum Vísi.

Aðsúgur er gerður að þekktum manni. Ef þetta er ekki almennt fordæmt þá er friður rofinn í þjóðfélaginu. Fleiri mun telja þörf á því að „frelsð“ sig með því að veitast að náunga sínum, kannski dugar einhverjum ekki lengur snjókast.

Dópsalann langaði svo til að berja einhvern sem hann taldi skulda sér.

Handrukkarinn réðst inn í hús og lamdi heimamenn með hafnarboltakylfu. 

Ísraelskir hermenn eru hvattir til að berja palestínumann, skjóta á þá og jafnvel drepa þessi kvikindi.

Í gömlu Júgóslavíu drápu menn allt í einu nágranna sína af því þeir voru af annarri trú eða öðru þjóðerni.

Í Sádi-Arabíu er það jafnvel kennt að allir sem ekki játa íslam séu villutrúarmenn og því réttdræpir. Morðingjanum er svo lofað laun í þessu og öðru lífi.

Í Þýskalandi nasismans var það áreiðanlega talin frelsun að berja eða drepa gyðing.

Ofbeldið er orðið snar þáttur í lífinu. Meðalmaðurinn er á hverju ári vitni að þúsundum limlestinga og morða í sjónvarpi og kvikmyndahúsum. Afleiðingin er stóraukið ofbeldi á götum borgar og bæja, tilefnislaust eða af gefnu tilefni. Kurteisi er lítils metin, hófsemi er talið óeðli en þeir sem láta hendur skipta eru miklir menn eða konur. Þeim er hampað.

Hvað á maður að hugsa þegar maður les fréttir af handrukkurum, mafíuofbeldi, klíkubardögum og þessari frétt af Guðjóni Heiðari Valgarðssyni og álíka nótum sem finnst það frelsandi að meiða aðra? 

Sá sem á óuppgerða sök við einhvern hann kærir eða stefnir fyrir dómstóla. Það er hinn rétti farvegur. 

Ég neita því að mannskepnan sé í eðli sínu vond þrátt fyrir að saga mannkyns sé lituð af spillingu og ofbeldi og næstum rituð með rauðu blóði. Hins vegar eru áreiðanlega örlítið brot mann sem koma í veg fyrir að stóri meirihlutinn fái að lifa í friði.

 Mómælandi sem fer með ófriði á ekki minn stuðning. 


mbl.is Veist að Jóni Ásgeiri í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrst hefur að Það Séu Hræðileg Skrimsli Búinn að Hreiðra Um sig í Alþingishúsinu

Gráðug eins og Andskotinn

Mjög Hættuleg

og eru að Plotta um að Ganga endanlega frá Launþeganum

Vaknið

Kveðja

Æsir (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 22:35

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Íslensk ungmenni sem henda snjóboltum í bíla og Jón Ásgeir eru bara Nazistar eða Talibanar.  Alveg sammála þér, þú ert vitur og skynsöm sál.  Ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum.  472 957 634 518 429 109 715 590 383 472 926 718!

Björn Heiðdal, 18.12.2008 kl. 01:32

3 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Snjóboltakast er terrorismi.

Ólafur Þórðarson, 18.12.2008 kl. 03:07

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband