Ungt, vinstra grænt og leikur sér

Dreg í efa að nokkur þingmaður hafi „drullað sér út“ en þingmenn Vinstri grænna hafa áreiðanlega setið manna fastast.

Allt er þetta nú hluti af lýðræðislega leiknum, líka þegar ungmennin munu berja einhvern vondan útrásarvíking eða embættismann sem gerir ekki það sem „þjóðin vill“.


mbl.is Ólæti á þingpöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Yfir helmingur þjóðarinnar telur að meirihluti sé með mótmælunum.

Það myndi þá flokkast undir það sem "þjóðin vill" hvort sem þér líkar betur eða verr

Heiða B. Heiðars, 8.12.2008 kl. 15:35

2 identicon

Hvað fær þig til að halda að þessi hópur sé á vegum VG?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 15:37

3 Smámynd: Johann Trast Palmason

endilega reindu að kjafta þá niður sem eru að reina að gera ethvað meðan þú gerir ekkert.

Johann Trast Palmason, 8.12.2008 kl. 15:39

4 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Jóhann:

Það að gala á pöllum á Alþingi, og berja í veggi hef ég ekki trú á að skili neitt voðalega miklu.

Að ráðast inná lögreglustöðina skilar einnig sáralitlu...

Hvernig væri að koma með einhverjar hugmyndir að því sem betur mætti fara?

, nú ekki nema þú haldir að þetta sé að skila miklum árangri fyrir samfélagið að gala á pöllum Alþingis.

Ingólfur Þór Guðmundsson, 8.12.2008 kl. 15:53

5 Smámynd: B Ewing

segi eins og aðrir, VG hvað ?  Ertu með sannanir ?  Ef ekki, strokaðu þá þetta bull þitt út.

B Ewing, 8.12.2008 kl. 16:00

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Nú, voru ungmennin ekki í vinstri grænum? Hvaða bull er þetta í manni.

Hins vegar er betra að aðhafast ekkert heldur en að fara heimskulega að ráði sínu og koma óorði á lögmætt andófi.

Hér er ekkert verið að „kjafta neitt niður“. Mótmæli eiga svo sannarlega rétt á sér en það er verulega heimskulegt að ráðast inn Alþingi með ofbeldi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 8.12.2008 kl. 16:04

7 identicon

Hvaða árangri hefur lögmætt andóf undanfarinna vikna skilað?

Aðgerðin við lögreglustöðina skilaði þrennu;

-við náðum manni sem hafði sætt ólöglegri handtöku út, þótt það væri reyndar á öðrum forsendum en við helst hefðum viljað,

-aðgerðin vakti athygli almennings á valdníðslu lögreglunnar,

-þótt löggan færi offari með piparúða, sem er auðvitað slæmt mál, er helst að sjá að menn hafi lært eitthvað af mistökum sínum.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 16:42

8 identicon

Og Sigurður, hvaða ofbeldi ertu að tala um? Skilgreinir þú hávaða virkilega sem ofbeldi?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 16:43

9 Smámynd: Þór Jóhannesson

Það er ekki skrítði að VG vaxi í skoðanna könnunum þegar allt spillingarliðið býður fólki ekki neinn annan úrkost en að vera með Ógnarstjórninni í liði eða VG.

Þór Jóhannesson, 8.12.2008 kl. 16:46

10 identicon

Af hverju heldur þú á sá hinn sami hafi verið handtekinn? Er það bara óskhyggja eða hefurðu eitthvað fyrir þér í því?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 17:25

11 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Hvernig í ósköpunum færðu það út, Sigurður, að fólkið hafi ráðist inn með ofbeldi? Það má hver sem er ganga upp á áhorfendapalla alþingis, það þarf ekkert að ryðjast þangað.

Þú ættir að fara varlega í að trúa ófrjálsum fjölmiðlum í einkaeign þeirra, sem bera ábyrgð á kreppunni - og lögreglu þeirra.

Björgvin R. Leifsson, 8.12.2008 kl. 17:47

12 Smámynd: Diesel

Sammála Evu og Björgvin. En, mest er ég þó sammála Jóhanni Þresti.

Þessi orð þín Jóhann segja meira en mörg önnur.

Diesel, 8.12.2008 kl. 18:19

13 identicon

Ætli fréttamenn hafi ekki verið einum of fljótir að hrapa að ályktunum. Haukur var ekki einu sinni í þessari aðgerð en hann kom þar að þegar verið var að handtaka fólk og fór upp á lögreglustöð til að krefjast raka fyrir þeim handtökum. Kannski var einhver þeirra sem var handtekinn með fána með sér?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 18:42

14 identicon

Enginn réðist á þingvörðinn. Ef hún hefur hrasað í troðningnum þá er það óhapp en ekki ofbeldisverk. Og því get ég lofað þér að enginn lögreglumaður hefði meiðst ef þeir hefðu ekki ráðist á mótmælendur og dregið þá út.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 23:56

15 Smámynd: Guðmundur Björn

Eva: Ertu wisserbesser?  Hefur þú virkilega ekkert annað að gera yfir daginn, en að blogga á síðum þeirra sem eru að gagnrýna þessi heimskulegu mótmæli?

Guðmundur Björn, 9.12.2008 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband