Umboð þingsins hefur ekkert breyst

Samfylkingin hefur ekki enn lært að vera í ríkisstjórn. Fjölmargir samfylkingarmenn komast hreinlega ekki úr hlutverki sínu sem stjórnarandstæðingar.

Það sem Samfylkingin þarf að læra er að standa saman um þessa ríkisstjórn sem nýtur hvorki meira né minna en tuttugu þingmanna meirihluta á Alþingi. Það ætti nú að teljast mikill og traustur meirihluti. Verkefnin eru næg og engin átæða til að sinna ekki vinnu sinni af krafti og heiðarleika þó mótmæli eigi sér stað í þjóðfélaginu. Fólk á rétt á að hafa sínar skoðanir og þær eru fráleitt einsleitar.

Ég hef þá trú að meirihluti þjóðarinnar vilji að ríkisstjórnin standi sig í stykkinu, geri rétta hluti en einblíni ekki á aukaatriði eins og ómerkilegt karp um pólitík þegar staðan er svona alverlega. Vandi þjóðarinnar er alls ekki pólitískur, hann lýtur að rekstri ríkissjóðs, starfsemi fjármálafyrirtækja, auknu atvinnuleysi og djöfullegri stöðu í lánamálum fólks og fyrirtækja.

Svo tala menn um að sækja aukið umboð til þjóðarinnar. Bölvað bull er þetta. Umboðið hefur ekkert breyst þrátt fyrir óáran, það er enn gott og gilt. Ekki þarf að sækja nýtt nema því aðeins að þingmenn Samfylkingarinnar séu að heykjast á ríkisstjórnarsamstarfinu.

Svo er það blákaldur raunveruleikinn. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eiga að tala einum rómi. Geti þeir það ekki eiga þeir að segja af sér. Sama á við þá þingmenn ríkisstjórnarflokkana sem ekki styðja ríkisstjórnina. Hálfkák gildir ekki.


mbl.is Gagnrýnir Björgvin og Þórunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Ég skil ekki þessa athugasemd.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 21.11.2008 kl. 10:46

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þetta er réttur skilningur þó með því fororði að ráðherrarnir eru forustan og stefna ríkisstjórnarinnar er sú sem þeir hafa tekið þátt í að móta ásamt öðrum stjórnarþingmönnum.

Svo er það hitt. Ríkisstjórnin er hluti framkvæmdavaldsins. Hún framkvæmir þá stefnu sem meirihluti þings ákveður. Þingið er vettvangur hinnar lýðræðislegu umræðu. Svo einfalt er það þótt framkvæmdin geti verið nokkuð á aðra lund.

Ráðherrar eiga að tala einum rómi. Stjórnarþingmenn eiga að styðja ríkisstjórnina eða lýsa öðru yfir. Þetta kemur ekkert neinu hjarðeðli við sé. Menn eiga að sinna vinnu sinni,láta verkin tala og blaðra minna.

Ég er ekki Framsóknarmaður og mislíkar eiginlega kommentið ;-)

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 21.11.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband