Þegar götulýður ákærði og dæmdi Steinunni Valdísi

Ofstækið í fjölda manna gagnvart Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, fyrrum borgarfulltrúa og þingmanns var hryllilegur. Fjöldi fólks sat um heimili hennar og enn fleiri leyfðu sér að sakfella hana og dæma á einhverjum vafasömum grundvell.

Þann 20. apríl 2010 var mér nóg boðið og skrifaði þennan pistil hér á þessum vettvangi:

Ef eitthvað er verra en sönnuð sök á Steinunni þá eru það rangar sakagiftir. Sök er alltaf vond, hvort sem hún hefur verið sönnuð fyrir dómstóli eða með því að viðurkenning liggur fyrir. Sök er vond því hún hefur áhrif á samfélagið en við því er ekkert að gera.

Verst af öllu er sú árátta margra að kanna ekki málavöxtu heldur sakfella og dæma. Þegar slíkt er gert er litið framhjá siðferðilegum gildum og ákærandinn verður verri en sá sem fingurinn bendir á. Honum skiptir það engu hvort sektin er sönnuð. Hann hefur kveðið upp sinn dóm. 

Í öllum frumstæðum þjóðfélögum hefur verið til fólk sem taldi sig mega sakfellfella, dæma og refsa. Þannig var farið að á miðöldum þegar galdraofsóknirnar stóðu sem hæst. Þannig gerðist það þegar gyðingar voru hundeltir um alla Evrópu og teknir af lífi. Þannig fóru menn að í suðurríkjum Bandaríkjanna er svörtu fólki var kennt um glæpi og refsingin var aldrei í neinu hlutfalli við meinta sök. Nú er nákvæmlega hið sama er að gerast á Íslandi þegar leitað er uppi stjórnmálamenn og þeir kallaðir mútuþegar fyrir þá sök eina að hafa fengið styrki frá fyrirtækjum útrásarvíkinga.

Þannig hagar sér illa upplýst fólk, lýðurinn, dómstóll götunnar, þeir sem vilja sjá blóð renna. Slíkir leita ekki sannleikans heldur taka þátt leiksins vegna. Þetta er sama fólkið og barði á lögreglumönnum í búsáhaldabyltingunnu-i, braut rúður, kveikti elda og felldi jólatré með undir tryllingslegum fagnaðarlátum. Slíkt fólk er ekki þjóðin. 

Ég er langt í frá sammála Steinunni Valdísi Óskarsdóttur í stjórnmálum en ég hef enga trú á því að hún hafi þegið mútur og gengið erinda útrásarvíkinga. Hún er ekki verri þó hún hafi fengið styrki frá fyrirtækjum sem við metum núna lítils. Fleiri en hún fengu styrki og eru ekki verri fyrir þá sök.

Það er bara ekki þannig að þeir sem voru í sama herbergi og svokallaðir útrásarvíkingar hafi orðið fyrir einhverju smiti og sé síðan óalandi og óferjandi.

Mótmæli fyrir utan heimili fólks sem hvorki hefur verið ákært né saksótt er ógeðfelldur leikur sem verður að hætta.

Þó því sé ekki saman að jafna má minna á ofsóknir götulýðs gagnvart öðrum stjórnmálamönnum og einstaklingum. Lýðurinn hefur safnast saman fyrir utan heimili fleiri stjórnmálamanna en Steinunnar Valdísar, þó enginn hafi orðið fyrir öðrum eins viðbjóði og hún.


mbl.is „Öskureið að rifja þetta upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta var nú ekki alfarið ótýndur skríll. Fyri utan usual suspects ærða af Útvarpi sögu voru þarna forstjóri matís og landsþekktur hæstaréttarlögmaður, sem var ekki betur að sér í stjornarskránni en þetta.

Það var víða mótmælt við heimili fólks og sama liðið í öllum tilfellum. Forstjóri Matís segist iðrast, en telur sig þó hafa unnið sigur þarna og hælir Steinunni fyrir að hafa sagt af sér. Hann telur þetta því enn rettlætt að einhverju leyti.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.12.2017 kl. 14:00

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Skrílslæti eru skrílslæti og skiptir engu hverjir taka þátt né heldur með hvaða titlum einstaklingar í hópnum titla sig. Held að við hljótum að geta verið sammála um það.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 4.12.2017 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband