Gleðileg jól ...
24.12.2016 | 15:31
Ekki veit ég hvers vegna tíminn æðir áfram hraðar og hraðar með hverju árinu sem líður.
Ég man ekki betur en að í síðustu viku hafi verið jól og áramót.
Og núna, aðeins nokkrum dögum síðar eru skyndilega aftur komin jól. Meiri vitleysan sem þetta er. Sko í mínu ungdæmi voru jólin aðeins verið einu sinni á ári, aldrei oftar.
Hvur breytt'essu, ha?
Ég var alinn upp við að fagna vetrarsólstöðum sem líklega er ævaforn siður hér á landi og ábyggilega víðar á norðurhveli jarðar. Forfeður okkar, sem lifðu á því sem landið gaf, fundu út að hér eftir hækkaði sól á lofti og þá var efnt til fagnaðar.
Aldeilis ástæða til að éta, drekka og syngja.
Nú koma vetrarsólstöður aungvum við lengur enda lifum við á því sem fæst í bónusum og nettóum. Þess í stað höldum við jól sem eru nú framleidd og framborin af þeim sem hafa það yndi mest að þukla á monningunum.
Já, meðan ég man, gleðilega verslun og hamingjuríkt kreditkort!
Enn kemur sólin fyrirhafnarlaust upp á hverjum morgni.
Án íhlutunar manna töltir jörðin sinn hring í kringum hana og hallar sitt á hvað undir flatt. Mannskepnan kann ekki að trufla þennan gang en hefur samt bein og óbein áhrif á margt annað í gangverki náttúrunnar. Nú hefur til dæmis verið votviðrasamt haust í þrjá mánuði, en á nýliðnum æskuárum mínum var hins vegar snjór á jörðu frá október og fram til vors.
Á vetrarsólstöðum og jólum er ástæða til að leiða hugann að göfugum málum sem varða umhverfi okkar og náttúru, land og haf ...
Nei
ég er bara að grínast. Fyrir alla muni látum ekki eitthvað svoleiðis trufla matarundirbúning, jólagjafakaup, skrautingar og annað sem tilheyrandi.
Nú eru jól, hæ og hó ...
Og þá man ég það.
Hvers vegna höldum við jól?
Einhver sagði þau vera heiðinn sið, annar nefndi jólasveinanna, jólagjafirnar, verslanirnar, börnin, blessuð kreditkortin, stýrivexti og fleira merkilegt var tilekið
Sjálfur er ég ekki alveg viss, held að það sé eitthvað annað.
Man bara ekki hvað það er.
Manst þú það?
Láttu mig vita við tækifæri.
Til vara fylgir hér ósk um gleðileg jól og von um að nýja árið verði betri en líðandi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já Sigurður tíminn líður hraðar og hraðar og miklu hraðar en þegar ég var fimmára og gleymdi jólunum einhvertíma í febrúar því ég átti afmæli um miðjan janúar en þá kom engin því að við áttum heima í Fögrubrekku sem var þarna rétt við brúnna á Hólmsánni skammt austar en Dísardalur og alltaf snælduvitlaust veður þegar ég átti afmæli.
Í Dísardal áttu félagar mínir Bóbó og Eyki heima og foreldrar þeirra gott fólk. Þeir bræður áttu líka systur yngri að mig minnir en hún var ekki eins spennandi og stúlkur urðu síðar. Við félagarnir veiddum í Hólmsá og brölluðum margt.
Á milli Dísardals og Fögrubrekku voru Nesjar sem eru en þarna en þar á milli Nesja og Fögrubrekku var hús sem ég man ekki hvað hét en þar átti heima vörubílstjóri sem mig minnir að hafi verið nefndur Óli.
En svona blaðra gamlir, hafðu nægjusöm jól Sigurður og þakka þér margt skemmtilegt og gagnlegt.
Hrólfur Þ Hraundal, 24.12.2016 kl. 16:47
Tímasetningin á jólunum er náttúruleg og heiðinn, en hentugt hefur líklega verið talið að láta þessa atburði fara saman því ekkert raskar vetrarsólstöðum.
Hrólfur Þ Hraundal, 24.12.2016 kl. 16:58
Thad eru ákvedin forréttindi fólgin í thví ad fá ad eldast svo, ad manni sýnist jólin koma í hverri viku.
Gledilega hátíd, hvert svosem tilefnid er og gott gengi um ókomin ár, med thökk fyrir skínandi góda pistla.
Gódar stundir, med kvedju úr sudurhöfum.
Halldór Egill Guðnason, 25.12.2016 kl. 15:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.