Við framseljum ekki Íslendinga

Ég heyrði sögu, sem að ég held að sé sönn, um það að sendiherra Bandaríkjanna hefði gengið á fund Davíðs Oddsonar þegar Bobby var kominn til landsins. Þar var lögð fram krafa stórveldisins um að Fischer yrði framseldur. Davíð svaraði því á þessa leið: „Við framseljum ekki Íslendinga!“,“ segir Guðmundur og hlær.

Þetta segir í ágætu viðtali við Guðmund G. Þórarinsson í dv.is í dag í grein um kvikmynd um Bobby Fisher.

Guðmundur segir ennfremur í viðtalinu.

Ég hafði gaman af henni, en atburðarásin í myndinni er öðruvísi en ég upplifði og skynjaði. Það er of mikil áhersla lögð á andleg veikindi Fischers.“ Það má greinilega heyra að Guðmundur er ekki sammála þeirri söguskoðun sem myndin sýnir. „Ég tel mig hafa þekkt hann dálítið, bæði frá atburðunum 1972 en einnig heimsóttum við hvor annan þegar hann fluttist til Íslands. Hann var mjög sérvitur og hafði sérstakar skoðanir. Snilligáfa hans gerði að verkum að hann var undir smásjá fjölmiðla frá unga aldri sem var merkilegt í ljósi þess að hann forðaðist að vera í fjölmenni sem og samskiptum við fjölmiðla. En Bobby var ekki geðveikur að mínu mati. Skoðanir hans á Bandaríkjamönnum og gyðingum voru að verulegu leyti djúp sár vegna vonbrigða sem hlutust af samskiptum við þessa aðila.

Flestir muna eftiraðdragandum að því að Bobby Fisher flutti til Íslands. Guðmundur segir um það mál:

Árið 2004 var Bobby Fischer handtekinn í Japan og sat þar í fangelsi í átta mánuði en ráðgert var að framselja hann til Bandaríkjanna. Af stað fór ótrúleg atburðarás þar sem Alþingi Íslendinga, að frumkvæði Davíðs Oddssonar, veitti Fischer ríkisborgararétt og með nýprentað vegabréf honum til handa var flogið út, skákmeistarinn leystur úr haldi og flogið með hann til eyjunnar í norðri, fullkomlega í óþökk stórveldisins í vestri. Guðmundur átti þar stóran hlut að máli.

Tengt viðtalinu er spjall við Einar Kárason, rithöfund, sem hefur aðeins fram að færa kjaftasögu eftir ónefndan Bandaríkjamann:

Athygli vakti þegar Einar Kárason skrifaði pistil í DV í byrjun árs þar sem hann hafði eftir ónefndum heimildarmanni að ákvörðun Íslendinga um að veita Bobby Fischer ríkisborgararétt árið 2005 hafi haft ófyrirséðar afleiðingar. Meðal annars hafi það spilað inn í þá ákvörðun Bandaríkjanna að loka herstöðinni á Suðurnesjum árið 2006, gert Íslendingum erfitt fyrir innan Alþjóðahvalveiðiráðsins og síðast en ekki síst gert að verkum að Bandaríkjamenn höfnuðu því alfarið að veita Íslendingum lánalínur í aðdraganda efnahagshrunsins árið 2008.

Svona geta menn spunnið upp með skáldaleyfi enda benda sögulegar staðreyndir á allt annað en að Bandaríkjamenn hafi reynt að hefna sín á Íslendingum fyrir þátt þeirra í að koma Fischer til aðstoðar. Raunar vissu Kanar að meðferð þeirra á Fischer var tómt rugl og átta mánaða dvöl hans í japönsku fangelsi bendir ekki til annars en að þeir hafi haft ýmislegt þarfara að gera en að berja á sérvitrum skáksnillingi.

Það þurfti svo mann með bein í nefinu að koma Fischer til aðstoðar og það var auðvitað Davíð Oddsson sem eins og svo oft áður tók af skarið. Og hann spyrnti við fótum þegar sendiherrann vildi fá Fischer framseldan vegna „glæps“ sem sem Guðmundur G. segir að hafi verið þessi:

Hann var óskabarn bandarísku þjóðarinnar og hylltur sem hetja þegar hann sneri aftur frá Íslandi sem heimsmeistari en var fljótlega rifinn niður af þeim stalli og að lokum hundeltur um allan heim fyrir engar raunverulegar sakir, nema þær að hreyfa trémenn á hvítum og svörtum reitum ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Sérviska eða geðveila? Það bendir margt til þess að hann hafi ekki alveg verið heill. Það verður að gæta að því að sérviska er oft fylgikvilli veikinnar og snilligáfa á enu sviði hefur stundum aukaverkanir. Það er ekkert að því að vera haldinn geðsjúkdómi svo þetta í sjálfu sér skiptir ekki höfuðmáli.

Jósef Smári Ásmundsson, 26.9.2015 kl. 17:28

2 Smámynd: Már Elíson

....og það var auðvitað Davíð Oddsson sem eins og svo oft áður....Já, Sigurður...Þú virkar nú alveg eins og blindaður af þessum manni. Er það eitthvað meira sem þú getur spyrt við þennan messias þinn...? - Bíð spenntur. Ég, og þjóðin, vitum um margt, en láttu heyra.

2 hliðar

horfðá fjallið speglastí

sléttum og tærum firðinum

horfðá barnið standá

hausí gruggugri tjörninni

horfðá bátana snúa botnum saman

í slýgrænni tjörninni

þá sérðu

að það hljóta að vera

2 hliðar á öllum málum..

@melis/97

 

Már Elíson, 26.9.2015 kl. 19:51

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Næs. Bestu þakkir Már.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.9.2015 kl. 19:59

4 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sigurður, það er ekkert að því að vera krítiseraður á nær þitt! 

Jónas Ómar Snorrason, 26.9.2015 kl. 20:12

5 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

„Nær þitt.“ Hvað er það?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.9.2015 kl. 20:34

6 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Þú verður ekki minni maður, að gagnrýna það sem illa er gert, á grundvelli þess, sem þú telur þig trúa á, hvað persónu eða málefni varðar. Þú vissir hvað ég meinti ekki satt???

Jónas Ómar Snorrason, 26.9.2015 kl. 20:53

7 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Eins og talað út úr mínu hjarta. Skil enn ekki „nær þitt“. 

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.9.2015 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband