Flugvöllurinn verður kjurr og flugvélar fljúga
13.9.2013 | 17:18
Undanfarnar vikur hefur verið afar skrýtið að lesa margvíslegar blaðagreinar eftir þá sem eru á móti flugvelli í Reykjavík. Hafa fjölmargir ruðst þar fram á ritvöllinn og beitt margvíslegum ritbrögðum til að hafa áhrif á almenningsálitið eins og eðlilegt er. Þeir hafa hins vegar ekki haft erindi sem erfiði. Samkvæmt skoðanakönnun er yfirgnæfandi meirihluti landsmanna hlynntur flugvellinum sem og meirihluti Reykvíkinga.
Þó þetta skipti vissulega miklu máli finnst mér rök andstæðinga flugvallarins oft mjög sennileg og jafnvel jákvæð. Í hvert sinn sem mér er þannig innanbrjóst þá rekst ég jafnan á grein eftir Leif Magnússon, verkfræðing og reynslubolta í flugmálum. Á kurteislegan og hnitmiðaðan hátt gerir hann greinarmun á réttu og röngu hvað flugvöllinn varðar.
Hann segir í grein í Morgunblaðinu í dag:
Það vekur því vægast sagt furðu að lesa innlegg Egils Helgasonar á vefsíðunni eyjan.is, dags. 10. september, þar sem hann telur að »lausn« í ágreiningi um Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri eigi að felast í styttingu flugbrauta hans, eða hugsanlegri gerð slíks minni flugvallar á Álftanesi. Eitthvað hefur skolast til í heimildum höfundar, þar sem engar marktækar vísbendingar eru um að þær flugvélar, sem nú eru í framleiðslu, eða væntanlegar á næstu árum, muni komast af með styttri flugbrautir.
Þar með er Egill bloggari Helgason afgreiddur á afar málefnalegan hátt. Svo tekur hann fyrir Álfheiði Ingadóttur, fyrrverandi þingmann Vinstri grænna sem ritað grein í Fréttablaðið fyrir stuttu og taldi sig vera með sáttaleið. Leifur segir:
Höfundurinn [Álfheiður] telur að »lausnin« eigi að felast í því að Reykjavíkurflugvöllur verði með eina flugbraut, sem liggi frá austri til vesturs. Þau tölugildi um áætlað nýtingarhlutfall slíks flugvallar, sem birt eru í greininni, hljóta að byggjast á einhverjum misskilningi.
Talsmenn Flugmálastjórnar Íslands, Isavia ohf. og Flugfélags Íslands hafa ítrekað staðfest opinberlega, að Reykjavíkurflugvöllur með eina flugbraut væri með öllu óbrúklegur sem miðstöð innanlandsflugs Íslands, og þaðan af síður sem áfangastaður sjúkraflugsins. Hvernig getur Álfheiður sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sem ætti að hafa efst í huga þarfir og öryggi sjúkraflugs fyrir alla landsmenn, boðið upp á »lausn«, sem felur í sér að áfangastaður sjúkraflugsins sé lokaður í 64 daga á ári?
Þar með er Álfheiður fyrrverandi Ingadóttir afgreidd.
Ljóst má vera að flugvöllurinn verður ekki fluttur nema á Keflavíkurflugvöll. Til annars eru engir peningar handbærir hjá ríkissjóði. Um leið leggst stór hluti innanlandsflugs af, borgarsjóður verður af tekjum af blómlegri atvinnugrein.
![]() |
72% vilja flugvöll í Vatnsmýrinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Samþykkur ykkur báðum að flestu leiti. Bendi þó á að allir aðrir flugvellir á landinu utan Kef og Rvk eru einnar brautar vellir og fáir hafa kvartað yfir því. Við í Reykjavík mundum njóta nálægðarinnar við Keflavíkurflugvöll ef hliðarvindur á Austur-vestur brautina,sem væri þá væntanlega lengd, yrði of mikill. Held að 64 heilir dagar séu ofáætlaðir. Líklegt er að ekki væri hægt að lenda part úr þessum dögum eins og oft gerist úti á landi. Kostnaður við aukaferðir í rútu, vegna innanlandsflugs á milli Kef og Rvk flugvalla, yrðu smávægilegur miðað við ávinninginn við að leggja af N-S brautina.
Sigurður Ingólfsson, 13.9.2013 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.