Þulurinn á rás 1 fullyrðir að komið sé haust ...

Vaknaði við það í morgun að þulurinn á rás 1 hjá Ríkisútvarpinu sagði að veðrið væri þannig í Reykjavík að nú sé haustið komið.

Ég fór auðvitað út á svalir og leit til Bláfjalla. Nei, hlý suðaustanáttin huldi þau með skýjum sínum og úti var um tíu gráðu hiti.

Er haustið virkilega komið eða er værukær innisetukonan hjá Ríkisútvarpinu að útvarpa sinni persónulegu skoðun..

Fullyrði að enn sé sumar og mér finnst að útvarpsvíkingar eigi ekki að gefa út yfirlýsingar sem þeir geta ekki staðið við. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldinn

Þetta gerði útslagið.  Nú verðum við að selja RÚV.

Baldinn, 22.8.2013 kl. 09:58

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Seljum frekar þulinn eða setjum hann til Veðurstofunnar.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.8.2013 kl. 10:12

3 Smámynd: Baldinn

Sigurður.  Þú ert ágætur

Baldinn, 22.8.2013 kl. 11:31

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

You saved my day ... eins og þeir segja á útlenskunni.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.8.2013 kl. 11:49

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Á þessum ''haustdegi'' er hitinn þó allvíða fyrir austan búinn að fara talsvert yfir 20 stig. Konan virðist aldrei hafa upplifa hlýja sunnanátt að sumarlagi fyrr. En fyrst og fremst er bara hún rugludallur um veður en þeir hafa vaðið uppi víða í sumar sem aldrei fyrr.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.8.2013 kl. 17:05

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Bestu þakkir fyrir innlitið, nafni minn. Bjóst sosum við að þú hefðir skoðun á hinni meintu haustkomu. En nú andar suðrið sumarsæla ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.8.2013 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband