Fólk sem velur fyrir aðra

Góður vinur minn segist vera alkóhólisti og hætti að drekka fyrir mörgum árum. Hann hélt einu sinni sem oftar upp á afmæli sitt og bauð upp á ómælt áfengi og hvort sem það var ástæðan eða eitthvað annað þá var afskaplega mikið fjör í afmælisveislunni.

Ég spurði hann hvers vegna í ósköpunum hann byði upp á áfengi. Hann svaraði stuttlega eitthvað á þá leið að gestir hans velji sjálfir. Það sé ekkert að því að bjóða upp á áfengi þó svo að hann kjósi að neyta þess ekki.

Mér fannst þetta gott svar. Yfirleitt er það þannig að maður velur sjálfur, hver er sinnar gæfu smiður. Um leið hefði mér fundist ákaflega viðeigandi að geta fengið eins og einn bjór á fótboltaleik. Á mót kemur að þá yrði ég líklega að ganga heim. Og ég vel bílinn en sleppi bjórnum.

Svo eru þeir til sem vilja velja fyrir mig. Mikið afskaplega verð ég fljótt leiður á slíku fólki. 


mbl.is Á móti áfengi á kappleikjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér Sigurður þetta er leiðinlegt. Sem betur fer er vinstristjórnin farinn og X og D komnir í staðinn. Það er spurning hvort að af verði af þessu tali þeirra um að leyfa bjór og vín sölu í búðum.

Sveinn Dagur Rafnsson (IP-tala skráð) 12.6.2013 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband