Án öflugs atvinnulífs gerist ekkert hér á landi

Mestu máli skiptir nú þegar tveir dagar eru í kjördag að kjósendur átti sig á því að innhaldslausar yfirlýsingar duga ekki. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð unnið með hagsmuni heildarinnar í huga. Hann gerir sér einn flokka grein fyrir því að án öflugs atvinnulífs gerist ekkert hér á landi. Vinstri stjórnin sem nú endar lífdaga sína hefur sannað þetta svo ekki verði um villst.

Forkólfar Framsóknarflokksins og annarra vinstri flokka geta endalaust talað um uppáhaldsmálefnin sín en þau verða aldrei að veruleika nema við byggjum aftur upp atvinnulífið.

Skattar og gjöld af atvinnulífinu og þeim sem í því starfa eru tekjur ríkissjóðs. Án þess þarf ríkissjóður áfram að draga saman seglin og segja upp fólki.

Ég ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og skora á aðra að gera slíkt hið sama. 


mbl.is Bjartsýnn Bjarni og ánægð Katrín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum bara vona að eftir helgina verði komin á Velferðarstjórn í stað Helferðarstjórnarinnar sem hefur haldið þjóðinni í gíslingu síðustu 4 ár.

Stétt með stétt!

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 25.4.2013 kl. 14:57

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Er Katrín Jakobsdóttir í Sjálfstæðisflokknum?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.4.2013 kl. 17:00

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þú ættir að spyrja aðra en mig, Anna Sigríður.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 25.4.2013 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband