Toppurinn á Keili er toppurinn ...
25.3.2013 | 00:22
Held að flestir ættu að haga sér eins og hálfvitar og ganga á fjöll. Get varla ímyndað mér betra betri brottför hér úr heim en að kveðja á fjalli.
Jón Ármann Héðinsson á að halda áfram enda byrjaði hann ekki að ganga á fjöll fyrr en hann var fimmtugur. Það gengur auðvitað ekki. Hann á mörg fjöll eftir og margar göngur, jafnvel aftur á Keili.
Keilir er flott fjall. Var þar á laugardaginn. Sá að búið var að koma fyrir þessum fína aðstandi í kringum útsýnisskífuna. Fer þá vel á því að kalla þann sem á stendur bókstaflega aðstandandi ...
Allt gert úr áli. Og mér datt auðvitað í hug að svona þyrfti að gera á gönguleiðum sem eru að troðast niður og skemma umhverfið. Byrjum á að setja áltröppur á Þverfellshorn í Esju.
Svo er þarna uppi gestabók í fínni álgeymslu. Hvergi annars staðar hef ég séð betri aðstöðu á fjallstindi. Nema auðvitað á Spákonufelli á Skagaströnd en þar er gestabókin geymd í fornlegri kistu sem sögð er svo gömul að Þórdís spákona hafi borið hana þangað upp rétt eftir aldamótin 1000. Og í henni er að auki óskasteinn og fást allar veraldlega óskir þar uppfylltar fyrir nokkra skildinga.
Hættur að láta eins og hálfviti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.