Þjóðin lyfti lánshæfismatinu - ekki ríkisstjórnin

Þjóðin tók völdin af ríkisstjórn og Alþingi og sagði að skuldir óreiðumanna kæmu sér ekki við. Afleiðingin varð ekki gjaldþrot ríkissjóðs, ekki að landið yrði Kúba norðursins, ekki að allt færi norður og niður í efnahagslífinu. Þvert á móti.

Nú hefur matsfyrirtækið Moody's sagt með léttri lund að lánshæfiseinkun ríkissjóðs sé stöðug en ekki lengur neikvæð.

Þetta gat ríkisstjórnin ekki gert upp á sitt einsdæmi. Og raunar barðist hún með oddi og egg gegn þjóðinni, rétt eins og hún berst enn fyrir því að koma landinu inn í Evrópusambandið þvert gegn vilja alls almennings.

Og hvað skyldu nú vera margir dagar til kosninga. Jú, það sést hérna hægra megin. Hvort tveggja er efni í veislu um helgina, lánshæfismatið og fyrirsjáanleg afsögn óhæfrar ríkisstjórnar. 


mbl.is Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs batnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragnhildur

Nákvæmlega! Þjóðin stóð fyrir þessari breytingu!

Hegðun þessara flóna sem þykjast stjórna hér fær mig til að vilja

Sérstaklega eftir Icesave dóminn, og var þó ekki á það bætandi.

Anna Ragnhildur, 8.2.2013 kl. 02:00

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Lánshæfismat?

Er það virkilega mælikvarðinn á eiginleika þjóða?

Til fjandans með núverandi stjórn. Annað eins óbermi mun sennilega og vonandi ekki hrjá þjóð vora aftur.

Ekki gleyma því þó, hvers vegna hún komst til valda.

Í herbúðum væntanlegra sigurvegara eru svo margar beinagrindur í ótal skápum, að það getur trauðla talist annað en hrein og klár geggjun, að kjósa böðla sína tvisvar.

Forysta Sjálfstæðisflokksins er fátt annað en aumkunnarverðar dreggjar hrunsins. Ef þú ætlar að halda uppi vörnum fyrir þessa forystusveit, Sigurður, ásamt fleirum, skalt þú, ásamt fleirum, vænta óvæntra niðurstaðna í næstu kosningum.

Það eru ekki einungis bjálfar og formannssleikjur á kjörskrá, fyrir næsta kjörtímabil.

Halldór Egill Guðnason, 8.2.2013 kl. 02:04

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það var Moody´s sem talaði upp blekkingarbóluna og hrunið á Íslandi. Það var ekki nokkur innistæða fyrir því mati!

Hvað þurfa íslenskir valdafíklar embættiskerfisins og bankanna mörg hrun, til að skilja raunveruleikann og blekkingar matsfyrirtækjanna?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.2.2013 kl. 02:44

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vísir - Skuldatryggingaálag Íslands það lægsta frá ársbyrjun 2008

Þurfa ekki Kúbuhagfræðingarnir að fara að skila prófskírteinunum?

Guðmundur Ásgeirsson, 8.2.2013 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband