Björn Valur skilur ekki kaldhæðnina

Fyrri nokkrum árum vildi einhver spaugarinn efna til fjársöfnunar fyrir mann sem nefndur hefur verið útrásarvíkingur. Allir skildu háðið og margir hlógu dátt.

Nú hefur brandaranum verið snúið upp á ríkisstjórnina. Kirkjan ætlar að safna peningum fyrir ríkisvaldið sem hefur ekki efni á mikilvægust verkefnunum en á nóga peninga í gæluverkefnin.

Björn Valur Gíslason, fráfarandi þingmaður Vinstri grænna og afsettur formaður þingflokks VG, skilur ekki brandarann og fer hamförum til varnar fjárlögum, fjáraukalögum, ríkisstjórninni, skjaldborginni, norrænni velferð, verðtryggingunni, auðlindaskattinum, skattheimtunni og öllu öðru þeim ósköpum sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir.

Á meðan hlær biskup og þjóðin tekur undir. Margir munu án efa leggja til fé í söfnunina, þó ekki sé nema vegna spaugsins.

Mikið ári er hún klár, þessi biskup. 


mbl.is Kirkjan ekki fær áður vegna „innanmeins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Sigurðsson

Þetta er týpískt fyrir Björn Val, hann ranghvolfir öllum hlutum. Mikið verður gott að losna við hann af þingi....

Ómar Sigurðsson, 3.1.2013 kl. 16:49

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Nei, nei. Svona menn eru bráðnauðsynlegir á þingi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 3.1.2013 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband