Enginn áhugi fyrir Samfylkingunni?

Þykir 42% kosningaþátttaka í netkosningu góð? Hún er lakari en í hinni ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu, aðeins skárri en í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kraganum. 

Hvers vegna er ekki betri þátttaka? Ekki er það vegna þess að fólk þarf að fara á kjörstað og ekki vegna fyrirhafnarinnar, veðrið skiptir engu máli og ekki heldur skortur á fararskjóta.

Gæti verið að almennt sé lítil eftirspurn eftir Samfylkingunni, svona almennt talað? 


mbl.is Kosningu lokið hjá Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vona að hún verði betri hjá flokknum okkar næstkomandi laugardag. En þar sem ég kemst ekki á laugardaginn,  þá fór ég í gær í Valhöll  og merkti við þig.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.11.2012 kl. 18:18

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Spurning hvað við segjum þá um þátttökuna hjá Sjálfstæðismönnum í Kraganum. Var hún ekki um 33%?

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.11.2012 kl. 19:35

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Bestu þakkir, Rafn. Gleður hjartað mitt að einhver skuli taka dálítið mark á því sem ég hef fram að færa.

Magnús, þátttakan var skárri hjá okkur en ykkur krötum, 37%, minnir mig. Hvort tveggja arfaslakt.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 17.11.2012 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband