KSÍ á að láta málið niður falla, strax!

Ætlar KSÍ að búa til framhaldssögu um fyrirliða landsliðsins? Manninum varð á að rugla um Albani, fullyrða að þjóðin sé öll eins og baðst afsökunar samdægurs. það gengur auðvitað ekki að KSÍ eða aðrir haldi áfram að velta sér upp úr þessu máli. 

Mikilvægt er að Aroni Einari Gunnarssyni sé fyrirgefin þessi eina yfirsjón sem honum hefur orðið á í opinberu lífi og síðan á að einhenda sér í næstu verkefni.

Það hefur ekkert upp á sig að velta þessu máli meira fyrir sér. Það sem er gert er gert og afsökunin og einlæg iðrun líka. Held að allir íþróttamenn láti sér þetta dæmi að kenningu verða og ræði opinberlega hér eftir varfærnislega um annað fólk, lið, hópa eða þjóðir. 


mbl.is Engin ákvörðun um fyrirliðabandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Algjörlega sammála. Ég yrði hreinlega reiður ef gera á einhverja framhaldssögu úr þessu óheppilega atviki.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.10.2012 kl. 15:18

2 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Alveg sammála ykkur.Óheppni hjá mjög góðum leikmanni.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 14.10.2012 kl. 21:26

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta var ekki slys eða óheppni. Maðurinn hugsar þetta, þetta er skoðun hans á Afgönum, og hefði aldrei beðið afsökunar ef ekki hefðu orðið viðbrögð við orðum hans. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.10.2012 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband