Undanþágu krafist vegna nauðgunarákæru

Mál Julian Assange er dálítið undarlegt og um leið dálítið flókið. Það hefur vakið athygli mína hversu mildum höndum fjölmiðlar hér á landi og annars staðar hafa farið um manninn. Hann er næstum því meðhöndlaður sem hetja af því að hann greindi frá fjölmörgum málum og nöfnum á Bandaríkjamönnum sem áttu að fara leynt en bandarísk yfirvöld telja að hafi verið hrikalega skaðlegur verknaður.

Ég velti fyrir mér hvernig umfjöllunin væri ef Assange væri ekki stofnandi Wikileaks. Í dæminu væri þá enn eftir stefna vegna rannsóknar á tveimur nauðgunum í Svíþjóð. Fyrir minni sakir hafa menn verið handteknir og fluttir á milli landa. Það breytir greinilega öllu að vera frægur og á móti bandarískum hagsmunum.

Nú þykir nauðgun svívirðilegur glæpur og hér á landi hefur ýmislegt verið sagt og skrifað til að sporna við honum. Jafnvel hefur verið krafist þyngri dóma fyrir nauðgun því hún er talin miklu meiri en alvarleg líkamsárás eins og margir freistuðust til að halda hér áður fyrr.

Enginn hefur þó skipulagt mótmæli fyrir framan breska sendiráðið og krafist réttlætis fyrir hönd sænsku kvennana. Engin umræða er um nauðgunarkærurnar nema þá helst að gera lítið úr þeim og draga úr málavöxtum sem byggð eru á sænsku lögunum.

Fyrir þá staðreynd að Julian Assange er talinn nokkurs konar krossferðariddari gegn Bandaríkjunum er farið um hann mildari höndum en aðra þá sem gerast sekir um nauðgun. Er þá staðan sú að ákæra um nauðgun sé ekki eins alvarleg ef viðkomandi karlmaður telst „hetja“ í starfi sínu? Getum við samþykkt undanþágur frá nauðgunarákæru?

Um daginn mætti á annað hundrað manns fyrr framan rússneska sendiráðið og mótmælti dómum yfir þremur stúlkum sem höfðu unnið það eitt til saka að hafa „truflað friðinn“ Gjörspillt rússkneskt dómskerfi dæmdi þær tveggja til þriggja ára dóm fyrir svo léttvægt brot að hér á landi myndi það varla duga til annars en lítilsháttar sektar.

Enginn efnir hins vegar til mótmæla til stuðnings tveimur konum í Svíþjóð sem ýtt er út fyrir allt réttlæti vegna þess að meintur nauðgari er stofnandi Wikileaks og hefur sem slíkur, frægur og auðugur, komist upp með að setja skilyrði fyrir að mæta til dóms. 


mbl.is Svíar heiti því að framselja ekki Assange
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Bjarni Guðmundsson

Málið snýst ekki um kærurnar um kynferðisbrot. Það er eitthvað sem ætti að ganga sinn rétta veg í dómskerfinu og flestir eru sammála um það. Þetta snýst um það að ef Assange kemur til Svíþjóðar þá verður hann framseldur til Bandaríkjanna og þar verður hann settur í ævilangt fangelsi án dóms og laga eða tekinn af lífi.

Málið snýst um að Bandaríkin eru eru að ofsækja blaðamann vegna þess að hann birti sannleikann. Það eina sem Svíþjóð þarf að gera er að gefa loforð um að þeir muni ekki brjóta mannréttindi og framselja hann til annars ríkis.

Kristján Bjarni Guðmundsson, 19.8.2012 kl. 12:09

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Allir eru saklausir uns sekt er sönnuð. Það er aðalmálið, en ekki fyrir hvern hver vinnur. Eða er það ekki réttlátt?

Það er staðreynd að spillt stjórnsýsla óttast sannleikann, og gerir allt til að þagga hann niður. Afleiðingarnar eru endalausar hörmungar.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.8.2012 kl. 12:12

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Maðurinn hefur verið hrakinn á flótta og leitað skjóls á sendiráðsskrifstofu í óvinveittu ríki.

"Mildar hendur" ???

Julian Assange er kannski andlitið út á við, en á bakvið hann og þá sem að Wikileaks standa er fólk sem á raunverulega undir högg að sækja eins og Bradley Manning sá sem ljóstraði upp gögnum Bandaríkjahers. Hann hefur verið fangelsaður og pyntaður af bandarískum stjórnvöldum án dóms og laga, fyrir það eitt að koma sannleikanum á framfæri. Aðför að þeim sem hafa reynt að koma honum til varnar, þar á meðal Wikileaks, er um leið aðför að sannleikanum.

Ef það hefur verið farið "mjúkum höndum" um eitthvað í umfjöllun um þessi mál er það viðbjóðslegt framferði stjórnvalda í hinum engilsaxneskumælandi löndum beggja vegna Atlantshafs og fylgiríkja þeirra, sem réttilega verðskuldar harða gagnrýni.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.8.2012 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband