Vinstri grænir með eldflaugavörnum Nató

Litlar fréttir berast af leiðtogafundi Nato í Chicago aðrar en þær að forsætisráðherra Breta og kanslari Þjóðverja ásamt fleiri silkihúfum hafi horft á úrslitaleikinn í Meistarakeppninni síðasta laugardagskvöld og forseti Bandaríkjann skildi ekki leikinn.

Að þessu slepptu vekur það athygli að fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar hefur forsætisráðherra og utanríkisráðherra samþykkt að virkja fysta hlutann í sameiginlegu eldflaugavarnarkerfi auk þess að sameina krafta aðildarríkja í vörnunum.

Án þess að hafa fyrir því heimildir geri ég ráð fyrir að á síðasta ríkisstjórnarfundi hafi allir ráðherrar samþykkt að þetta eldflaugakerfi verði sett í gang. Ekki einu sinni Steingrímur J. Sigfússon, allsherjarráðherra, hafðu uppi mótmæli frekar en þegar ákveðið var að Nató gerði loftárásir á Líbýu í fyrra.

Þarf ekki að hefja opinbera rannsókn á þessum málum? 

Eða er staðan einfaldlega sú að flokkseigendafélagið í Vinstri grænum syngi einhuga „Ísland í Nató“, til viðbótar við hina bjargföstu trú að Ísland eigi heima í ESB.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband