Þeim varð ekki allt að gulli

MidasSkopmynd dagsins í Morgunblaðinu er af fyrrum bankstjórum Kaupþings sem eru búnir að keyra bíl sinn á ljósastaur. Annar þeirra heldur því fram að óhappið sé ljósastaurnum að kenna.

Höfundur myndarinnar er Helgi Sigurðsson hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hárbeittar ádeilur sínar í skopmyndum sínum. Hann virðist vera fyrir smáatriðin, hann Helgi því á númeraplötu bílsins stendur „Midas“. Nafnið krefst smávægilegrar þekkingar til að geta skilið húmorinn í myndinni.

Midas var í grísku goðafræðinni konungur. Einn af grísku guðunum veitti honum eina ósk og óskaði hann þess að allt sem hann snerti yrði að gulli. Ekki varð þetta til þess að lífið yrði honum betra eða léttbærara. Hann snerti dóttur sína sem varð samstundis að gulli, matur varð að gulli, einnig drykkir og annað. Ágirndin bar skynsemina ofurliði.

Sagt var að hæfileikar stjórnenda bankamanna fyrir hrun væru slíkir að allt yrði þeim að gulli. Það reyndist rangt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Seðlabankinn sá til þess að þessir ökuþórar hefðu nægt eldsneyti.  Miðað við askturslag þeirra fram til 2008 þá er það ábyrgðarhluti að gefa þeim tækifæri á að valda enn meira tjóni.

Lúðvík Júlíusson, 10.3.2012 kl. 13:30

2 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Frábær skopmynd. Hún segir allt.

Úrsúla Jünemann, 11.3.2012 kl. 11:19

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Alveg frábær mynd!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 11.3.2012 kl. 11:48

4 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Auðvitað er þetta staurnum um að kenna.. ;)

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 11.3.2012 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband