Hákarl og skata ...

Eins gott að Íslendingar bjóði ekki gestum sínum upp á óþvera eins hákarl og skötu. Þá fyrst væri orðstír þjóðarinnar í verulegri hættu.
mbl.is Íslenskt brennivín var lágpunkturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er ekkert að skötunni.  Smá tólg, og hún rennur ljóflega niður.

Ásgrímur Hartmannsson, 15.12.2011 kl. 17:19

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þetta er bara ekki rétt hjá þér, Ásgrímur minn. Át einu sinni skötu og missti hárið. Hef ekki fundið það síðan. Þvílíkt eitur.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 15.12.2011 kl. 17:21

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ætli brennivínið hafi verið borið fram nægjanlega kalt?

Brennivín við stofuhita er ekki besti drykkurinn. Þó er brennivínið alltaf betra en hákarl og skata.

Þeir sem vilja leggja slíkt á borð ættu að gera það í laumi.

Guðjón Sigþór Jensson, 15.12.2011 kl. 17:38

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Neysla á hákarli og skötu ætti að fara fram utan dyra í hvassviðri, helst 14 m/s ;-)

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 15.12.2011 kl. 17:42

5 identicon

Brennivín á alls ekki við með skötunni, það eyðileggur skötubragðið. Ég fæ alveg ferlegan brjóstsviða af Brennivíni en skatan læknar allt. Því miður fæ ég ekki konuna til að éta hana.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.12.2011 kl. 17:57

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Ég myndi frekar velja konuna, jafnvel að óséðu.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 15.12.2011 kl. 17:59

7 Smámynd: Þorsteinn S McKinstry

Hvort Brennivín og hákarl telst gott eða ekki fer líklegast eftir því hvað er haft til samanburðar.

Þar sem ég vinnu minnar vegna ( sem leiðsögumaður ferðamanna ) þarf annað veifið að bragða bæði hákarl og Brennivín og þá oft saman langar mig að benda á að Brennivín er best við stofuhita. Þannig er það sætt með örlitlum kryddkeim (kúmen) og ekki beiskt eða rammt eins og það verður við kælingu. En svo má illu venjast að gott þyki.

Þorsteinn S McKinstry, 15.12.2011 kl. 18:37

8 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Mikið rétt, Þorsteinn. Þú veist þó hvað þú ert að fara að éta en aumingja útlendingarnir halda að þetta sé þjóðlegur matur og snafs og kyngja því (bókstaflega). Ekkert er þó fjarri lagi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 15.12.2011 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband