Ég líka - kaupi krónur og greiði með krónum

Seðlabanki Íslands hefur óskað eftir tilboðum í íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í íslenskum krónum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. 

Aldeilis var þetta nú gefandi frétt í Mogganum mínum. Gaf mér hugmynd.

Ég ætla að fara að dæmi Seðlabankans og óska hér með eftir íslenskum krónum til kaups. Greiði fyrir þær í íslenskum krónum að frádregnu 10% umþóttunargjaldi. Afhending vöru verður að fara fram áður en greitt er fyrir hana. Lysthafendur hafi frekar samband við mig en ekki Má, seðlabankastjóra.

Nú kunna ýmsir að spyrja hvers vegna þeir ættu að skipta við mig í stað Seðlabankans. Jú, ég kaupi allar krónur, ekki bara stóru slummurnar, heldur hverja einustu krónu. Lágmarki er þó 10 krónur svo ég þurfi ekki að greiða til baka í aurum. Þeir eru torfengnir. Kaupi líka krónubréf ríkissjóðs. Kjörin eru flóknari en þessi hérna að ofan.


mbl.is Seðlabanki kaupir krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er missagt í fréttinni. Seðlabankinn er í raun og veru að bjóða Evrur fyrir krónur.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.5.2011 kl. 10:28

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Ég held að það hafi ekki farið framhjá neinum. Gat bara ekki staðist þetta ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 23.5.2011 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband