Sérfræðingar í að fela staðreyndir og villa um fyrir þjóðinni
6.5.2011 | 08:42
Lof sé aðilum vinnumarkaðarins eins og þeir eru kallaðir, þetta fólk sem setur reglulega upp leikrit með og án þátttöku sáttasemjara ríkisins. Nú eru þeir búnir að semja. Og allur almenningur heldur að lélegt leikrit sé heilagur sannleikur, tilveran sjálf.
Svo meðvirkir eru fjölmiðlar að í þeirra munni heitir húsnæði sáttasemjarans Karphúsið. Ekki nóg með það. Fátt segir af niðurstöðum kjarasamninga en enn meira af vöflum, sultu og rjóma. ekki er spurt um ágreiningsefnin, aldrei er farið ofan í saumana á kjarasamningunum.
Aðilar vinnumarkaðarins eru útspekúleraðir. Þeir kunna að láta líta svo út fyrir að þeir sem lægst hafa launin beri mest úr býtum. Þannig hefur það verið frá því elstu menn muna. Og alltaf virðist vera til fólk á horrimininni þrátt fyrir alla þessa umhyggju aðila vinnumarkaðarins. Guðmundur Jaki heimtaði að lægstu laun skyldu vera 100.000 krónur á mánuði og atvinnurekendur tóku andköf. Nú eiga lægstu laun að vera 200.000 krónur á mánuði og atvinnurekendur skrifa undir.
Aðilar vinnumarkaðarins vita upp á hár hverjar eru tekjur landsmanna. Þeir geta meira að segja sett nöfn og kennitölur við fjárhæðirnar. Þar af leiðandi er hvorki mikill vandi að finna þá sem þurfa leiðréttingar við eða semja um það.
Vandinn eru hins vegar sérhagsmunirnir. Aðilar vinnumarkaðarins eru orðnir sérfræðingar í að búa til samninga sem fela staðreyndir mála, bæði fyrir samkeppnisaðilum á kjaramarkaði sem og fjölmiðlum og almenningi.
Mér dettur ekki í hug að aðilar vinnumarkaðarins séu að vinna fyrir þá sem lægst hafa launin. Þeir eru að vinna fyrir þá sem hafa meðallaun og eftir því hærri laun. Sá stóri fjöldi, og hann er visslulega mjög stór miðað við þá fáu sem hafa lægst launin, sættir sig einfaldlega ekki við skerðingar á launum. Hann vill launahækkun. Flugmenn og flugumferðastjórar vilja sínar launahækkanir og ekki eru þeir beinlínis á neinni horrim eða hvað?
Og auðvitað er þetta allt leikrit til að fela staðreyndir mála. Þetta er ekki kjarabarátta heldur grímulaus hagsmunabarátta jafnt verkalýðs- sem atvinnurekenda. Gömlu slagorðin eru aðeins leiktjöldin og mestu skiptir að PR málin séu í réttum gír og fjölmiðlar haldi að allir séu að vinna baki brotnu að kjarasamningum
Ég vil spyrja þá sem dettur í huga að efast um orð mín, hvort ekki séu einfaldari og skilvirkari aðferðir til að semja um kaup og kjör en með aðferðum sem tíðkast hafa í tugi ára, hófust löngu fyrir tölvuöld?
Meðfylgjandi mynd er úr Morgunblaðinu í dag, hana tók Ómar. Stjórnlaus fögnuður, Vilhjálmur og Grímur Sæmundsen eru orðnir rjóðir af vöffluáti og formaður SA fer í limbó.
Kaupmáttur talinn vaxa um 3-4% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:25 | Facebook
Athugasemdir
Góð færsla og nákvæmlega það sem er að gerast! Það vantar 100.000kr upp í neysluviðmiðið á lægstu launin þegar samningstíminn er úti hvar eiga þeir sem lægst launin hafa að finna fjármagn til að lifa af í þrjú ár?
Sigurður Haraldsson, 6.5.2011 kl. 08:52
Ef alltaf hefði verið leiðrétt meira hjá þeim lægst launuðu, Sigurður, væru væntanlega allir á jafn háum laun, eða lágum! Svona einhverskonar Samfylkingarstefna!
Þú segir að fjöldi þeirra sem séu á lægstu laununum sé lítill. Það getur rétt verið, en fjöldi þeirra er þó töluverður og vandi þeirra mikill. Allt það launafólk sem er á launum samkvæmt kjarasamningi SGS við SA er með undir 200.000 kr mánaðarlaun. Þetta er nánast allir þeir sem ekki hafa einhverja sérmenntun eða háskólanám. Vandi þessa fólks er virkilega alvarlegur!!
Varðandi þann leikaraskap sem ASÍ og SA stunda við nánast alla kjarasmninga, þá er hann orðinn svolítið leiðinlegur og tilgangslítill. Þeirri niðurstöðu, sem þessi samningur hljóðar upp á, hefði hæglega verið hægt að ná strax á fyrstu dögum samningaviðræðna, ef vilji hefði verið fyrir hendi.
En sá vilji var ekki til staðar. Þeir félagar Villi og Gilli þurftu að baða sig fyrst í nokkra mánuði í sviðsljósinu, á kostnað launþega. Egó þessara manna skiptir meira máli en launafólkið eða fyrirtækin!
Ég tek undir með þér. Það hlýtur að vera til einfaldari og skilvirkari aðferð en sá leikaraskapur sem nú tíðkast! Hugsanlega réttlátari líka.
Gunnar Heiðarsson, 6.5.2011 kl. 09:48
SAASÍ semja af sér ermarnar - bofs.blog.is
Guðmundur Ásgeirsson, 6.5.2011 kl. 14:14
Góð bloggfærsla hjá þér, Guðmundur, eins og alltaf.
Vel að orði komist í bloggi Guðmundar: ?Á mannamáli heitir þetta að semja af sér með loforðum sem er tæknilega útilokað að standa við. Til dæmis eru fyrstu þrjú atriðin einfaldlega ósamrýmanleg með þeim úrræðum sem í boði eru, það er ekki bæði hægt að borða kökuna og eiga hana.?
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 6.5.2011 kl. 14:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.