Smápeningar að láni hjá AGS

Skil ekkert í þessari frétt. Er virkilega einhver tilgangur með því að fá „aðeins“ 19 milljarða króna að láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum?

Næst ekki sami árangur með því að senda Lilju Móses (sem forsætisráðherra nefnir svo, líklega í niðurlægingarskyni) til New York og láta hana betla á fjölförnu horni. Hæfileikarík kona eins og hún gæti eflaust safnað miklu meiru á örskömmum tíma.

Grínlaust, þurfa Íslendingar að niðurlægja sig og frammi fyrir alþjóðasamfélaginu með því að biðja um smápeninga að láni? 


mbl.is Ísland á dagskrá IMF á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Grínlaust og þegar einhver rís upp gegn mafíunni þá er sá hin sami miskunnarlaust barin niður aftur af flokksræðinu! Nú er ekki annað í stöðunni en að blása í herlúðra á Austurvelli þann 17.01.2011

Sigurður Haraldsson, 7.1.2011 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband