Endursögn af korti Vegagerðarinnar

kort_vegager_arinnar.jpg

Hvar skyldi vera „snjóþekja“ á Norðurlandi? Og hvar er þetta Norðurland?Er átt við Öxarfjörð, Eyjafjörð, Skagafjörð Húnafjörð eða Hrútafjörð?

Fyrir þann sem ekki veit er langt á milli þessara staða og víða há fjöll. Staðreyndin er einföld. Af augljósum ástæðum er sjaldan hægt að segja að sama veður eða færð sé hin sama á öllu Norðurlandi.

Er nú ekki hallærisleg fréttmennska að endursegja það sem stendur á korti Vegagerðarinnar og taka upp ambögur og vitleysur sem þar eru? Væri ekki þess í stað betra að birta bara kortið?

Og fyrir alla muni, ekki gera ráð fyrir að veðrir sé eins á Selfossi og Kirkjubæjarklaustri, Hvammstanga og Kópaskeri, Vopnafirði og Hornafirði.


mbl.is Skafrenningur á Bröttubrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigurður, ég er sammála þér hér að ofan. Svo finnst mér bara berst að fara inn á veður.is til að sjá hvernig veður er og verður.

kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.11.2010 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband