Hvernig standa fjármálin, Jón borgarstjóri?

Þetta er flott hjá Jóni borgarstjóra. Hann gerir vel í því að styðja við homma og lesbíur, byggja upp grænar götur, vera á móti ofbeldi og rasisma, misnotkun á tölvum og allt annað sem heilbrigt er og skemmtilegt.

En ... hvernig standa fjármál borgarinnar, Jón? Hvernig er tekjuinnstreymið og hvernig er gjaldahliðin? Er sjóðstreymið í lagi, þarf að taka lán, ætlarðu að hækka skatta, verður fólki sagt upp hjá borginni?

Fylgistu með og skilurðu það sem fram fer, Jón borgarstjóri? Þú hefur ekki tjáð þig um þessi mál hingað til og fengið að komast upp með það. En nú er kominn tím til að þú tjáir þig um annað en léttu málin. 


mbl.is Vill ofbeldi burt úr borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hvern varðar um " tekjuinnstreymi" þegar menn eru að skemmta sér. Hefurður aldrei farið út " á lífið" maður?

Svanur Gísli Þorkelsson, 17.9.2010 kl. 23:17

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Rétt hjá þér, Svanur. Svona á maður til að gleyma sjálfsögðum hlutum.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 18.9.2010 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband