Allt gengur í lokuðu hagkerfi
18.8.2010 | 10:28
Allt hangir þetta saman. Hin sjálfstæða stofnun Seðlabankinn er nú ekki sjálfstæðari en það að hann tekur við fyrirskipunum frá fjármálaráðherra. Sá þar á móti að svara til saka hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og til að allt sé nu í lukkunnar velstandi eru settar upp æfingar í lokuðu hagkerfi. Skattar eru hækkaðir og þá fær ríkisstjórnin plús í kladdann hjá AG. Pöntuð er lækkun á stýrivöxtum og annar plús kemur í kladdann. Frekari skattahækkanir eru kynntar fyrir AG sem gerir þær að sínum tillögum og fjármálaráðherra fer í boðunarherferð. Þriðji plúsinn í kladdann.
Svo halda allir að allt stefni í rétta átt í hagkerfi sem er svo gjörsamlega lokað og teygt til hins ítrasta. Allir sjá að þetta ástand gengur ekki þrátt fyrir meinta plúsa.
- Enn eru 15.000 manns á atvinnuleysisskrá og þeim á eftir að fjölga með haustinu, þannig er það alltaf.
- Aukning í verðmætasköpun er engin enda öllum innlendum og erlendum fjárfestingum í fyrirtækjarekstri hafnað.
- Hnekkja á dómi Hæstaréttar vegna gengistryggðra lána, verið er að vinna að tillögum um slíkt enda leggst AG gegn honum.
- Bankar veita enga fyrirgreiðslu til fyrirtækja sem auka vilja umsvif sín, stækka eða bara halda sjó gegn ríkisvæðingu banka á einkareknum fyrirtækjum.
- Markaðir íbúða og bíla eru ónýtir.
- Strangar hömlur eru á viðskiptum með gjaldeyri.
- Tillögur eru uppi um eignarnám á kvóta í sjávarútvegi
- Lögfesta á einokun í landbúnaði.
Þarf að telja upp meira til að sanna að allt er hægt í lokuð hagkerfi?
Vextir lækka um 1% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.