Fjölmiðlamenn auglýsa þjóðhátíð
30.7.2010 | 17:19
Eyjamenn eru vænir og góðir. Næstum því eins og Íslendingar en snöggtum skárri en Færeyingar og Jótar. Þess vegna halda þeir þjóðhátið sem nýtur vinsælda á Íslandi.
Nú eru allir í sumarfríi nema sumarafleysingarmenn á fjölmiðlunum. Þeir sjá um að auglýsa þjóðhátíð í Eyjum enda langar þá ekki til Akureyrar, Borgarfjarðar eystri, Neskaupsstaðar, Ísafjarðar, Stykkishólms, Borgarness ... Þar eru bara litlar hátíðir sem ekki tekur því að minnast á þó svo að þær séu á Íslandi. Þjóðhatíð í Eyjum er staðurinn nema einhver leysi vind á Akureyri.
Herjólfur siglir milli lands og Eyja. Hann strandaði í nótt vegna sjávarfalla. Þannig er hafið utan við Vestmannaeyjar. Fylgja meiraðsegja ekki viðteknum venjum og tímasetningum um flóð og fjöru. Svoleiðis gerist ekki í Breiðafirði. Þar er bara hann Baldur sem siglir milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Tveggja fallegustu staða á Íslandi. Heimaey er samt fallegasti staður í Evrópu.
Í Stykkishólmi eru ekki fulltrúar síðdegisútvarps RÚV glaðvakandi að taka viðtöl við bjórdrykkjufólk, ekki heldur á Brjánslæk, né á Akureyris, Borgarnesisi, Neskaupsstöðumi eða í mýrardrullunni á Ísaskutulsfirði.
Ástæðan er einfaldlega sú að það er skemmtilegra í útlöndum en á Íslandi.
Búist við 16.000 á þjóðhátíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Sigurður, það er vonandi að fall sé fara heill með Herjólf.. Það er oft talað um svo ef ílla fer í byrjun. Ég segi að það verði slegið met í fjölda gesta til Vesmannaeyjar og spái í kringum allt að 25000 manns þar á Sunnudag... Kannski á hver staður sína paradís en ekki allra að finna hana...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 30.7.2010 kl. 19:38
Allt í gammni ... samt held ég Eyjamenn verði ekkert hamingjusamir með of marga gesti.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 30.7.2010 kl. 20:52
Sammála þér Sigurður, það var ekki minnst á að hér á Ísafirði fer fram heimsmeistaramót í Mýrarbolta. Það hefði nú þótt frétt ef það hefði verið í Reykjavík eða Akureyri. En málið er að fjölmiðlafólk gerir ískyggilega mikið upp á milli byggðalaga. Alveg eins og með góða veðrið. Ef sól kemur fram úr skýjum á Akureyri eða austfjörðum fer allt af stað. Það hefur ekki verið minnst á blíðuna sem hefur ríkt á Ísafirði síðan í maí. Það þarf ekki að tíunda það sem kemur gott frá landsbyggðinni nema fáum útvöldum svæðum. Wonder Why?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2010 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.