Skotleyfi vinstri manna á forsetann

Glögglega má sjá að algjör vinslit hafa orðið með forseta Íslands og vina hans og samferðamanna á vinstri væng stjórnmálanna. Ástæðan er auðvitað synjun hans á staðfestingu Icesave laganna. Í sjálfu sér gat maður sagt sér það að synjunin myndi valda manninum miklum vandræðum, en nú er ljóst að þau eru miklu meir. Algjör vinslit.

Nú ráðast fyrrum samherjar Ólafs á hann miskunarlaust. Hann verður barinn niður með öllum ráðum. Fjármálaráðherra hefur tjáð sig, heilbrigðisráðherra kveður enn fastar að orði og svo eru það fótgönguliðarnir af öllum tignargráðum sem hafa fengið ótakmarkað skotleyfi. óbreyttir þingmenn eru eins og hýenur, glefsa, bíta og sparka í þennan gamla samherja eins og þeir mest og best geta.

Rétt eins og segir í bíómyndunum um mafíuna; There is a contract on him. 


mbl.is Ofbauð viðbrögð forseta Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Datt henni í hug að VG.væru eitthvað betri þegar  þeir væru á valdastól.

Ragnar Gunnlaugsson, 15.4.2010 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband