Fimmvörðuháls er köflóttur

100414_5vh_aska_kl_1637_981213.jpgÁ Fimmvörðuhálsi virðist nú snjóa svart og hvítu, jafnvel svart á hvítu. Meðfylgjandi mynd tók ég kl. 16:37 af vefmyndavél Mílu sem staðsett er á Fimmvörðuhálshrygg.

Myndavélin horfir í norður. Í dag hefur verið vestanátt og askan fallið á Fimmvörðuháls . Engu að síður er snjórinn næst myndavélinni alveg svartur. Fjær er hann grár. Í fjarska sést svo til Litla og Stóra, gígana á norðanverðum hálsinum.

Ekki veit ég hvað veldur en það er dálítið sérkennilegt að sjá Hálsinn svona köflóttan.


mbl.is Mikið tjón á Þorvaldseyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband