Ríkisstjórn upptekin við aukaatriðin

Forsætisráðherra Íslands ritar langa (og millifyrirsagnalausa) grein í Fréttablaðið 9. apríl 2010. Þar hreykir hún sér af fjórtán verkefnum sem ríkisstjórnin hefur afrekað að klára.

Enn eru sextán þúsund manns án atvinnu á Íslandi.

Enn er verðbólagn á uppleið.

Enn er krónan verðlaus

Enn eru stýrivextir atvinnulýfinu óviðráðanlegir

Enn er Icesave málið óleyst

Enn bólar ekkert á aðstoð AFG

Enn snúa „frændur“ vorir á Norðurlöndunum baki við okkur

Enn fær ríkið og stofanir þess lökustu einkunni matsfyrirtækja

Og svo leyfir forsætisráðherra þjóðarinnar að hreykja sér af einhverjum endurbótum sem í sjálfu sér eru aukaatriði miðað við ofangreinda upptalningu. Þetta er eins og að námsmaður eyði tímanum í að laga til á skrifborðinu hjá sér þegar hann á að vera að læra fyrir próf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Væntanlega er þessi grein eftir Hrannar, en hvað um það. Eru þau ekki komin í kosningagírinn? Er ríkisstjórnin loks búin að átta sig á að hún ræður ekki við verkefnið sem hún tók að sér? Er ekki verið að reyna að fegra þátt Samfylkingarinnar í þessu stjórnleysi sem hér hefur ríkt í rúmt ár?

Gunnar Heiðarsson, 11.4.2010 kl. 12:17

2 identicon

Ekki vera vondir við Jóhönnu, hún er orðin svo gömul - geyið.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband