Ekki tímabært að huga að nafni

gos_973229.jpg

Myndirnar sem Þorsteinn Jónsson tók eru góðar. Þó hefði ég viljað sjá fleiri. Landslagið á Fimmvörðuhálsi hefur greinilega breytst mikið, sjóðandi vatn og glóandi hraun hafa hreinsað burtu mikinn jökul.

Ekki er ástæða til að hrapa að nafngiftum. Tröllagjá getur varla verið réttnefni. Kreppukambur er kannski betra.

Bölmóður hefur lengi verið nafn á stórum gíg suðaustan í Hálsinum. Hann fékk nafnið um miðjan síðasta áratug  síðustu aldar þegar bölmóðurinn var að draga þjóðfélagið niður í sótsvart helv... Ekki varð það raunin en nú eru uppi krepputímar og margir bera ábyrgð. Hugsanlega er hægt að búa til örnefni úr nöfnum útrásarvíkinga og meðreiðasveina þeirra.

Myndina tók ég í leyfisleysi af visir.is og er eftir Egill. Biðst velvirðingar á þessu. Breytingar á landslaginu vestan við Bröttufannarfell eru gríðarlegar.


mbl.is Nýtt fjall á Fimmvörðuhálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Landslagið á Fimmvörðuhálsi virðist ekkert hafa breyst ennþá miðað við myndirnar sem hafa verið að birtast og eldgosið hefur ekkert hreinsað burt af jökli svo neinu nemi eftir því sem jarðvísindamenn segja. Þessi hæðarræfill sem sumir virðast halda að sé nýtt fjall var þarna síðast þegar ég fór yfir Hálsinn en það var í september 2007.

corvus corax, 22.3.2010 kl. 16:44

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Út af þessari athugasemdi bætti ég við mynd af landslaginu austan við gönguleiðina. Sannnast sagna eru miklar breytingar þarna á landslaginu.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.3.2010 kl. 18:01

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Tja, er þetta ekki að gerast í um 1000 metra hæð yfir sjávarmáli - sem sagt uppi á fjöllum - og varla getur þetta því talist vera fjall, öllu heldur kambur eða hryggur.

Óskandi væri að mogginn gæti séð sér fært að ráða annað en tólf ára fallista úr grunnskóla í netfréttir sínar.

Baldur Fjölnisson, 22.3.2010 kl. 18:24

4 identicon

Legg til að "fjallið" verði nefnt Sigurðarkambur.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 22.3.2010 kl. 23:39

5 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Því er ég mikið sammála enda vantar á mig kambinn.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.3.2010 kl. 23:41

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Já eða Sigurðarbunga, eftir því hvernig þetta lítur út eftir að gosinu lýkur.

Baldur Fjölnisson, 23.3.2010 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband