Ofspáð Kötlugos er löngu gleymt , en ...

SkjálftarOft er sagt að fólk gleymi fljótt. Raunar er það þannig að fjölmiðlar gleyma eða segja ekki frá og þar af leiðandi „gleymist“ hverfur ýmislegt úr minni almennings. 

Man einhver eftir eldgosunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli? Jú, auðvitað. Aðeins tæp sex ár eru frá þessum umbrotum sem voru bara nokkuð skemmtileg fyrir þorra almennings, en olli engu að síður miklum skaða undir Eyjafjöllum og þar fyrir austan.

Vorið 2010, eftir að gosinu í Eyjafjallajökli lauk spáðu margir að um haustið myndi Katla gjósa. Fjölmiðlar hér innanlands birtu ófáar fréttir um hugsanlegt gos í Kötlu og svo rammt kvað af þessum spádómum að jafnvel fjölmiðlar á Bretlandi misstu sig gjörsamlega í dómsdagsumfjöllunum sínum.

Jæja, og tíminn líður eins og honum ber skylda til. Núna, tæpum sex árum síðar, bólar ekkert á þessu margspáða eða ofspáða gosi í Kötlu. Þeir sem fylgst hafa með jarðskjálftamælum sjá eitthvað svipað og sést á myndinni af jarðskjálftavakt Veðurstofu Íslands. Svo til engar hræringar í Mýrdalsjökli og nágrenni. Raunar er það svo að skjálftum í jöklinum hefur síst fjölgað.

Hvers vegna ættu nú fjölmiðlar að fjalla eitthvað um það sem greinilega er ekki fréttaefni? Auðvitað er engin ástæða til þess. Hins vegar er ábyrgð fjölmiðla afar mikil og auðvelt fyrir einn þeirra að fara að missa rökhugsun út af hugsanlegu Kötlugosi og þá fylgja oft hinir með og fyrr en varir á að verða eldgos í jöklinum. Vandamálið er bara að Katla fylgist ekki með fjölmiðlum.

Velkist einhver í vafa er nokkur munur á forsetakosningum og Kötlugosi.

Hið fyrrnefnda er á dagskránni í vor og enginn veit hverjir bjóða sig fram enda rennur framboðsfresturinn út mánuði fyrir kjördag. Hið síðarnefnda er fyrr eða síðar á „dagskránni“.

Hvort tveggja veldur hins vegar af þarflausu miklum og vandræðalegum vangaveltum í fjölmiðlum og koma þar til fjölmargir spámenn, bæði meiriháttar og minniháttar. Allir þykjast hafa vit á málum en svo kann að vera að enginn sjái rétt í sínu föðurlandi.

Svo er það hitt að Katla og vangaveltur um forsetakosningar hjálpa til að fylla dálksentimetra dagblaða og mínútur í ljós- og hljóðvökum.


Bloggfærslur 6. janúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband