Ofbeldi er ekki lýðræðislegt

Mótmæli sem leysast upp í ofbeldi á eignum annarra eru jafn slæm og bankahrun og efnhagsástand sem valdið hefur fjárhagslegum skaða.

Ég velti því fyrir mér hvað myndi gerast ef einhver meintra sökuldólga í bankamálunum mynd sýna sig á Austurvelli. Myndi lýðurinn ganga í skrokk á þeim? Gæti forsætisráðherra og viðskiptaráðherra verið óhultir meðal mótmælenda? Ef ekki þá er þessi fundur einskis virði.

Ofbeldi og skemmdarverk heyra ekki til lýðræðislegra aðgerða og munu aldrei gera það.


mbl.is Geir Jón: Lítið má út af bregða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Neddi

Hvaða ofbeldi var framið þarna? Hvaða skemmdarverk voru framin?

Ef þú getur ekki svarað því þá get ég það. Ekkert ofbeldi var þarna og engin skemmdarverk voru framin. Það var nokkrum eggjum og einhverju af mjólkurvörum kastað í alþingishúsið en það skolast af í næstu rigningu.

Neddi, 8.11.2008 kl. 17:53

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Hver hélt því fram að ofbeldi hefði verið framið á Austurvelli? 

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 8.11.2008 kl. 19:45

3 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það væri athyglisvert að sjá skemmdarvarga sem gæti skemmt eitthvað í líkingu við það sem auðvaldið og ríkisstjórnin hafa skemmt hérna undanfarnar vikur.

Vésteinn Valgarðsson, 9.11.2008 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband