Óminni tímans, bókin fyrir sumarfríiđ

 

Óminni tímans BNýlega kom út bókin Óminni tímans og er eftir ţann sem hér skrifar.

Bókin fjallar um nokkra stórmerkilega atburđi í sögu ţjóđarinnar sem hafa haft mikil áhrif.

Höfundurinn leyfir sér ađ draga ályktanir sem oft ganga gegn viđteknum skođunum. Bókin tengir sama sagnfrćđi og jarđfrćđi og í henni eru birtar stórar myndir af einstćđri náttúru landsins.

Titill bókarinnar Óminni tímans vísar til ţess ađ allt gleymist í tímans rás.

Svo kann ađ virđast sem Íslendingasögurnar gefi raunsanna mynd af ţví sem gerđi frá landnámi og fram á elleftu öld. Ţetta er ekki trúlegt. Fornsögunar eru ekki sagnfrćđi, ţćr eru meira í ćtt viđ skáldskap. 

2 ÓminniÓminni tímans er 172 blađsíđur. Bókin kostar 8.500 krónur. Hćgt er ađ kaupa hana á netinu, https://ominni.is/ 

Kaflar bókarinnar eru ţrír og fjöldi undirkafla:

1. kafli: Um hvađ reiddust gođin? Sagt er frá kristnitökunni sem sögđ er hafa veriđ áriđ 1000. Varfćrnislega er fullyrt ađ engin lög um kristni hafi ţá veriđ sett. Einnig er fjallađ um Svínahraunsbruna sem sannađ er ađ hafi runniđ áriđ 1000 og er ţví oft nefnt kristnitökuhrauniđ. Ţarna á milli Lambafells í Ţrengslum og Bláfjalla er fagurt útivistarsvćđi sem fáir ţekkja.

4 Óminni2. kafli: Uppruni landnámslagsins. Sagt er frá Vatnaöldum en ţar varđ mikiđ öskugos áriđ 877 og ţá féll landnámslagiđ sem jarđfrćđingar og fornleifafrćđingar nota sem viđmiđun í aldursákvörđunum.

6 Óminni Vatnöldur eru vestan viđ viđ Veiđivötn. Ţau urđu til í eldgosi áriđ 1477. Fyrir ţann tíma var stunduđ veiđi í Stórasjó. Veiđimenn höfđust viđ í svokölluđu Hreysi sem er ofan viđ bakka Tungnaár sem nú rennur ţar sem Stórisjór var.

5 Óminni 3. kafli: Kalbletturinn í fornsögunum. Landsvćđisins sunnan og austar Mýrdalsjökuls er lítiđ getiđ í fornsögunum. Ástćđan er einfaldlega sú ađ áriđ 939 gaus í Kötlu og Eldgjá varđ til. Líklegt er ađ gosiđ hafi í Eldgjá í allt ađ sex ár. Úr henni kom mikiđ hraun, um 844 ferkm, og gríđarleg gjóska. Allt bendir til ađ brennisteinsmóđa úr eldum og hraunum hafi valdiđ hungursneyđ og dauđa ţúsunda landsmanna líkt og gerđist í Skaftáreldum áriđ 1783. Ţetta var allt gleymt ţegar ritöld hófst á Íslandi.

8 Óminni Í bókinni Óminni tímans er fjöldi ljósmynda, sumar hverjar taka yfir heila opnu eins og sjá má á ţeim myndum sem hér birtast. Einnig eru birtar skýringamyndir, töflur og jafnvel niđjatöl.

Bókin Óminni tímans fćst ekki í bókabúđum. Höfundurinn gefur bókina út, skrifađi hana, tók myndirnar og hannađi útlit hennar.

12 Óminni Bókin kostar eins og áđur sagđi 8.500 krónur. Hćgt er ađ kaupa hana á netinu, https://ominni.is/.

Bókin er borin út á höfuđborgarsvćđinu en send í pósti utan ţess.

Gott er ađ opna (tvísmella á) myndirnar sem fylgja pistlinum.10 Óminni

 


« Síđasta fćrsla

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband