Fáránlega áhugaverðir atburðir liðins árs
1.1.2017 | 22:45
Vefþjóðviljinn tekur jafnan um áramót saman það sem helst hefur borið við á liðnu ári. Hér eru nokkur óborganleg atriði.
- Enginn ársins: Þingmannafjöldi Samfylkingarinnar úr kjördæmum þar sem eru sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Garðabær og Seltjarnarnes, alls um 160.000 kjósendur.
- Fjáröflun ársins: Flokkur fólksins fékk engan mann kjörinn á þing en getur fengið um 40 milljóna króna verðlaun úr ríkissjóði fyrir atkvæðin sem hann náði.
- Stefna ársins: Skoðanakannanir sýndu lítið fylgi Samfylkingarinnar. Oddný Harðardóttir lýsti mikilli furðu á því vegna þess að Samfylkingin hefði bestu stefnu í heimi.
Endurskoðun ársins: Eftir kosningar sagði Oddný Harðardóttir að Samfylkingin þyrfti að endurskoða stefnu sína. Þá bestu í heimi.
- Afsagnarskilningur ársins: David Cameron forsætisráðherra Bretlands sagði af sér daginn eftir Brexit-kosninguna. Katrín Jakobsdóttir sagði afsögnina ekki koma á óvart. Sjálf sat Katrín í ríkisstjórn sem tapaði tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum. Engum ráðherra í þeirri ríkisstjórn datt í hug að segja af sér.
- Líkur ársins: Birgitta Jónsdóttir sagði að 90% líkur væru á því að hún gæti mynduð yrði fimm flokka vinstristjórn.
- Þónokkuð ársins: Helgi Hrafn Gunnarsson sagði að Birgitta Jónsdóttir hefði opinberlega rægt aðra, þónokkuð oft og mikið.
- Þarfleysi ársins: Hjálmar Sveinsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, sagði tilgangslaust að fjölga akreinum á helstu umferðaræðum. Þær myndu bara fyllast einhvern tímann af bílum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.