Öld frá strandi Goðafoss við Straumnes í Aðalvík
30.11.2016 | 12:14
Í dag er ein öld er liðin síðan Goðafoss strandaði við Straumnes undir samnefndu fjalli yst í Aðalvík. Þar sem flakið liggur núna munar aðeins um sexhundruð metrum að skipið hefði náð fyrir Straumnes. Miðað við það var það ótrúleg óheppni að skipið skuli hafa siglt upp í fjöru.
Skipstjórinn mun hafa gefið fyrsta stýrimanni stefnu til að sigla eftir út úr Aðalvík og hvarf hann svo úr brúnni. Úti var slæmt veður, snjókoma og ekkert skyggni og vissi stýrimaður ekki fyrr til en að skipið steytti á grunni.
Talstöðvar skipsins biluðu í strandinu og útilokað var að senda út hjálparbeiðni. Um borð voru fimmtíu og átta manns, farþegar og áhöfn.
Þegar skipið strandaði drapst á ljósavél og þurfti fólk að bíða í tvo sólarhringa í myrkri. Það var ekki fyrr en stýrimaður og nokkrir hásetar gátu róið á björgunarbát inn að Látrum í Aðalvík að hjálpin barst. Vandamálið var þá að allir bátar stóðu uppi enda hávetur og útræði ekkert. Mikil vinna var að sjósetja báta, senda skilaboð á milli bæja og skipuleggja hjálparstarf.
Aðalvíkingar björguðu áhöfn og farþegum. Má gera sér í hugarlund hversu aðstæður voru erfiðar. Þetta var frækileg björgun, enda veður slæmt og snjór og ís á fjörum og báta heimamanna byggðir til fiskveiða en ekki björgunarstarfa.
Goðafoss var nýtt skip, byggt í Kaupmannahöfn 1915 fyrir Eimskipafélag Ísland sem nefnt var óskabarn þjóðarinnar, stofnað 17. janúar 1914. Strandið var gríðarlegt áfall fyrir félagið.
Árið 1980 fór ég í fyrsta skipti um Hornstrandir, ferðirnar áttu eftir að verða ótalmargar síðan. Þá gengum við þrír félagar á Straumnesfjall og að herstöðinni gömlu þar uppi. Eftir að hafa skoðað okkur um þar, skildu leiðir, þeir héldu sömu leið til baka en mér lék hugur á að fara niður að hinu sögufræga Straumnesi og ekki síður að Goðafossi.
Þetta var tilkomumikil ganga, niður Straumnesdal og út að vitanum á Straumnesi. Þar fyrir utan mætast hafstraumar og gat verið viðsjálvert fyrir litla báta að fara í röstina sem þar varð oft afar mikil.
Örskammt fyrir innan Straumnes, aðeins um hálfum kílómetra, eins og nefnt var hér í upphafi, liggur flakið af Goðafossi. Þegar ég átti leið þarna um höfðu áratugirnir farið illa með flakið. Aðeins stjórnborðsstefnið var nokkuð heillegt og mastur stóð skáhalt út í Aðalvík rétt eins og bending inn hana, minnisvarði um frækilegt björgunarafrek heimamanna. Skammt frá var stór gufuketill en skipið var knúið gufu.
Ég var einn, veðrið var ákaflega fallegt og stillt og áhrifin voru eins og að koma í kirkjugarð, mér fannst þetta nærri því helgur reitur.
Auðvitað var ekkert heillegt í skipinu. Brim, frost og óveður höfðu fyrir löngu tortímt því sem heimamenn gátu ekki bjargað.
Í Morgunblaði dagsins ritar Matthildur Guðmundsdóttir, Aðalvíkingur, grein þar sem hún fjallar um strand Goðafoss. Í henni segir hún:
Enginn spurði Látramenn hversu miklu eldsneyti þeir hefðu eytt við að flytja fólkið í land og bæta við ferð til Ísafjarðar. Það spurði heldur enginn um hve mikil matföng hefðu farið til að fæða 58 manns, en vetrarforði Látramanna minnkaði að sjálfsögðu við þessa björgun. Björgunarlaun voru engin.
400 olíutunnur voru um borð í Goðafossi og voru Látramenn fengnir til að bjarga þessum tunnum eftir því sem veður leyfði og sem laun fyrir þá vinnu fengu heimamenn ½ tunnu á hvert heimili.
Eitthvað máttu heimamenn nýta úr brotnandi skipsflakinu og til gamans má geta þess að eitt fjósið á staðnum varð frægt fyrir fína hurð sem þar var og á stóð með gylltum stöfum: Fyrsta farrými.
Forðum var það þannig að ekki var spurt um laun fyrir að bjarga náunganum í nauð hans. Þannig er það ekki heldur í dag.
Myndir, hægt er að stækka allar myndir:
- Loftmynd af Straumnesfjalli. Inn á það hefur strandstaðurinn verið merktur. Látrar eru neðst í hægra horninu. Þangað eru tæplega tíu kílómetra leið, róður á móti hvassviðri.
- Mynd af flaki Goðafoss, tekin 1980
- Mynd af stefni Goðafoss, tekin 1980
- Mynd tekin ofan af Straumnesfjalli 1995
- Goðafoss, skip Eimskipafélagsins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.