Hroki Birgittu og slóð spillingarinnar
16.10.2016 | 16:04
Stjórnmálaflokkurinn Píratar er ekki frábrugðinn öðrum flokkum. Hann gerir sitt til að vekja athygli á sér jafnvel þó það þýði að hann sendi lýðræðinu fingurinn.
Píratar telja að kosningar séu formsatriði. Þeir halda að hagstæð úrslit í skoðanakönnunum gefi þeim leyfi til að virða kosningarnar að vettugi og byrja stjórnarmyndunarviðræður. Leiðarljósið er baráttan gegn spillingu.
- Birgitta Jónsdóttir var ein af fjórum þingmönnum Borgarahreyfingarinnar. Með rógi hrökktu þrír þingmenn þann fjórða úr þingflokknum.
- Birgitta Jónsdóttir og félagar hennar breyttu nafni flokksins í Hreyfinguna.
- Birgitta Jónsdóttir og félagar hennar breyttu nafni Hreyfingarinnar í Pírata.
- Hún og félagar hennar gera eins og þeir spilltir framkvæmdamenn, stofnar nýtt fyrirtæki og með nýrri kennitölu. Í hennar tilviki stofnar hún nýjan flokk með nýrri kennitölu.
Birgitta Jónsdóttir er holdgerfingur spillingarinnar á þingi. Hún virðir lýðræðið að vettugi, rægir samstarfsmenn sína, stofnar nýja flokka eftir þörfum.
Ætla kjósendur að láta þetta yfir sig ganga?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.