Kosningapróf segir ekkert um pólitíska afstöðu
4.10.2016 | 23:24
Svokölluð kosningapróf eru í besta falli lélegur samkvæmisleikur. Það getur aldrei komið í staðinn fyrir rökhugsun hvers og eins. Þar að auki geta spurningarnar seint endurspeglað hið pólitíska svið og því til viðbótar eru svörin of einhæf.
Sá sem hefur skoðun á stjórnmælum getur aldrei tekið undir já eða nei svör. Þannig aðferðarfræði er alls ekki greindarleg. Útilokað er að pólitísk skoðun byggist á þessu:
- Mjög ósammála
- Frekar ósammála
- Hvorki sammála né ósammála
- Frekar sammála
- Mjög Sammála
- Vil ekki svara
Sá sem semur spurningarnar getur hæglega verið leiðandi í spurningum sínum, lagað þær þannig til að sá sem tekur prófið fer ósjálfrátt eftir leiðandi svörum höfundarins. Þar að auki er ekkert gefið upp um einkunnagjöfina. Afar einfalt er að segja að svörin/fullyrðarnar sýni að sá sem prófið tekur sé á allt annarri skoðun en hann í raun og veru er.
Tökum sem dæmi fullyrðingu eins og þessa:
Íslensk menning á undir högg að sækja vegna alþjóðavæðingar.
Svarið getur hvorki verið já eða nei eða eitthvað þar á milli. Fullyrðingin krefst umræðu og yfirlegu og að því loknu hefur maður myndað sér skoðun. Hún er ekki ein af þeim sex möguleikum sem gefnir eru hér á undan.
Væri skynsamur maður spurður að því hvort menningin eigi undir högg að sækja vegna alþjóðavæðingar þá getur svar hans verið afar fjölbreytilegt og snerti aldrei þessi sex svör.
Dæmi: Vissulega á tungumálið undir högg að sækja. Hins vegar blandast íslensk menning að hluta til saman við menningu annarra þjóða rétt eins og alltaf hefur gerst en þó aldrei hraðar en núna. Það þýðir hins vegar ekki að menningin verði önnur, heldur ný bætist við. Er það slæmt? Já, ef ný menning útrýmir tungumálinu. Nei, ef tungumálið eflist og auðgast. Já, ef íslensk menning hefur aldrei komist í snertingu við utanaðkomandi menningu.
Þetta er hins vegar ekki allt enda mörgu sleppt, jafnt það sem gott er og einnig hitt. Þar af leiðandi er ein af fullyrðingunum sex ekki nægileg og svarið verður svarið seint flokkspólitískt.
Þessi lágkúra sem kosningapróf sannarlega er hefur enga þýðingu. Þetta er eins og þegar við unglingarnir í gamla daga skiptumst í hópa eftir því hvort við héldum með Bítlunum eða Rolling Stones. Eða þá hvort við vorum Valsarar eða KR-ingar. Í sannleika sagt vissu allir að bæði Bítlarnir og Rollingarnir sömdu góð lög, raunar frábær, þess á milli sem þau voru lakari ... eða okkur fannst þau léleg. Valur átti sína slöppu leiki og einnig KR en stundum urðu þessi félög Íslandsmeistarar í fótbolta, handbolta eða körfu.
Sama er með stjórnmálin. Afar auðvelt er að fletja þau út, gera stefnu og skoðanir að einhverjum dægurmálum sem breytast eftir því hvernig vindurinn blæs. Þannig eru kosningapróf.
Jú, auðvitað er ég hlyntur því að Ísland aðstoði aðrar þjóðir og taki á móti flóttamönnum. Vandamálið felst ekki í því að sumir vilji það ekki. Meiru máli skiptir að sumir sem vilja setjast hér að eru ekki á flótta meðan aðrir eru að berjast fyrir lífi sínu. Þeir hugsan í stjórnmálum verða líka að átta sig á því að fjármagn er takmarkað og ekki er hægt að gera allt fyrir alla jafnvel þó viljinn sé fyrir hendi.
Sá sem er svo skyni skroppinn að hann þurfi að taka kosningapróf til að átta sig á pólitískri stöðu sinni her að biðja um að einhver ljúgi að sér. Hann er ruglaður í ríminu og lætur aðra ráðskast með sig án þess að skilja það. Svipað eins og að skoða ljósmyndir af fólki í þeim tilgangi að dæma um innræti þess ...
Í þessu ljósi öllu ættu menn að geta skilið ljóð Steins Steinars:
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði).
Og þótt þú tapir,
það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Taktu kosningaprófið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta er hárrétt athugað. Verstar eru svo víðtækar ályktanir, sem dregnar eru af svörum við loðnum spurningum. Ein slík gæti t.d. verið, að ég væri á móti alþjóðavæðingu, sem ég er ekki, þótt ég vilji hlú að og jafnvel vernda íslenzka menningu.
Lengst hefur verið gengið í slíkum ályktunum við loðnum og leiðandi spurningavaðli um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þjóðin hefur engan áhuga á að kollvarpa núverandi stjórnarskrá, þótt því sé haldið fram á grundvelli téðrar, illa ígrunduðu þjóðaratkvæðagreiðslu.
Bjarni Jónsson, 5.10.2016 kl. 13:42
Bestu þakkir, Bjarni. Gott að vita að maður sé ekki einn með þessa skoðun.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 5.10.2016 kl. 13:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.