Merkilegt fyrirbrigði þessi hái snjór

Hár snjórNokkuð undarlega er tekið til orða í frétt mbl.is um fjallaskíðamót. Sagt er í fyrirsögn: „Fjallaskíðamót í meters háum snjó“.

Nokkuð hef ég stundað skíði um ævina, gengið þvers og kruss um landið á gönguskíðum, rennt mér á svigskíðum og jafnvel stundum dregið fram fjallaskíðin þegar mikið hefur legið við.

Hins vegar hef ég aldrei lent í „háum“ snjó en vissulega hefur hann oft verið djúpur. Held að vanir skíðamenn tali aldrei um háan snjó, jafnvel þó þeir standi neðarlega í hlíðum og horfi upp.

Snjórinn getur verið mikill eða lítill og mælikvarði á slíkt er dýptin. Skrifa þessi mismæli á reikning blaðamannsins. Viðmælendur hans hefðu aldrei talað um háan snjó.

Myndin er af Vífilsfelli, tekin í gær. Í fjallinu er nokkur snjór. Með skáldaleyfi má fullyrða að í fjöllum sé snjórinn „hár“ ... en slíkt flokkast frekar sem leirburður.


mbl.is Fjallaskíðamót í meters háum snjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Rétt er það...."háir skaflar"..."lítill snjór"...djúpur snjór"..en aldrei "hár snjór"  -  Maður má þá vera ansi langt undir snjónum og horfa upp.

Már Elíson, 8.5.2016 kl. 17:23

2 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Já Sigurður, stundum dettur einhver ódámur út úr sumum, sem meinar eitt en segir annað.

En gaman að segja frá því að ég var staddur í Skarðsdal með afbragðs fólki þegar keppendur komu í mark. Sumir höfðu á orði að keppendur væru í eldri kanntinum, í árum sjáðu til.

Og já það snjóaði víst einhvað á annan meter sísona og hlíðarnar spýttu því frá sér án viðvörunar í sólbráðinni og blíðunni.

Sindri Karl Sigurðsson, 8.5.2016 kl. 19:43

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Ég öfunda ykkur sem voru þarna, Sindri. Hefði sjálfur viljað vera með. Auðvitað frábær aðstæða á Siglufirði til fjallaskíðaferða.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 8.5.2016 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband