Ísraelinn sem hefur endaskipti á staðreyndum
21.9.2015 | 14:08
Ýmis sagnfræðileg atriði eru þess eðlis, að aðalatriðin eru ljós og skýr og ofast afar langsótt að fara að leita að öðrum atriðum til að gera þau að aðalatriðum.
Með engu móti er hægt að halda því fram að Íslendingar hafi veitt Bobby Fisher hæli vegna velþóknar á Gyðingahatri hans.
Aðalatriðið var að hann var bannfærður á næsta langsóttan hátt fyrir það að hafa brotið gegn viðskiptabanni sem Bandaríkjamenn settu á vegna stríðs í fyrrum Júgóslavíu og hundeltur fyrir það. [...]
Jafn langsótt er það að bannfæra eigi flutning og lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar á Íslandi vegna þess að þeir séu einhver sérstök ádeila á Gyðinga sem þjóð.
Alveg eins mætti segja að í trúnni á Jesúm Krist felist sérstök tilbeiðsla á þeirri þjóð sem fæddi af sér þennan merkasta Gyðing allra tíma og færði honum og kristnum mönnum í hendur hið Gyðingalega trúarrit Biblíuna, það er Gamla testamentið,
Að ekki sé nú talað um trú kristinna manna á hina heilögu postula og fólkið í kringum Krist, sem allt var Gyðingar.
Þetta skrifar Ómar Ragnarsson á bloggsíðu sinni undir fyrirsögnin Aukaatriði gerð að aðalatriðinu og honum mælist vel eins og svo oft áður. Tilefnið er grein í Israel national News, sem dr. Manfred Gerstenfeld ritar og frá er sagt í frétt á mbl.is, Íslendingar ekkert lært af helförinni.
Í greininni setur Gerstenfeld út á Passíusálma Hallgríms Péturssonar sem séu uppfull af hatri og háðsglósum í garð gyðinga og að Bobby Ficher, skákmeistari, hafi fengið íslenskan ríkisborgararétt þrátt fyrir að hann hafi verið gyðingahatari.
Ómar svara manninum ágætlega og einnig Jón Valur Jensson sem segir í athugasemdum við pistil Ómars:
Ekkert Gyðingahatur er heldur til í sálmum Hallgríms Péturssonar, sem var ómengaður af Gyðingahatri Lúthers. Og það lýsir ekki Gyðingahatri að tala um Gyðinga sem "Júða", það merkir einfaldlega Gyðinga á öld Hallgríms, og við lesum ekki eitthvert nazistískt hatur eftir á inn í orðfæri Hallgríms -- þ.e.a.s. nema við séum sjálfir ruglaðir. Hallgrímur er maður kærleikans, ekki haturs, ólíkt Gyðingahöturum síðari tíma (múslimskum og heiðnum).
Að æðstu prestar Gyðinga, Farísear og fræðimenn hafi borið ábyrgð eins og rómverskir ráðamenn á krossfestingu Krists og ofsókn kristinna manna á 1. öld, felur engan veginn í sér, að afkomendur Gyðinga eigi hlutdeild í þeirri sekt.
Foreldrar mínur voru kristnir og ólu börn sín upp í þeirri trú. Þrátt fyrir að hafa lesið og lært Passíusálmana í æsku get ég fullvissað alla um að ég er ekki haldinn neinum rasisma né heldur hatast ég við gyðinga eða Ísraela og raunar engra ríkja, þjóða eða hópa sem ég þekki til.
Þó veit ég það sem Jón Valur segir, að æðstu prestar Gyðinga, farísear og rómverskir ráðmenn báru ábyrgð á krossfesingu Krists (læt hér vera rökræður um hvort sögur af krossfestingunni kunni að vera rangar). Megi ekki nefna þessa staðreynd þá er illt í ári fyrir frjálsri hugsun.
Núlifandi Tyrkir bera ekki ábyrgð á þjóðarmorði á Kúrdum á síðustu öld, né heldur er hægt að draga Bandaríkjamenn til ábyrgðar fyrir þrælahald á þarsíðustu öld eða þá sem nú búa þar sem er Alsír fyrir svokallað Tyrkjarán á Íslandi og víðar. Ekki heldur er með nokkru móti hægt að berja á Dönum fyrir maðkað mjöl eða draga Þjóðverja til ábyrgðar vegna tveggja heimsstyrjalda.
Staðreyndir eru einfaldlega staðreyndir, framhjá þeim skautar dr. Manfred Gerstenfeld. Misskilningur hans byggist á því að orðin gyðingur og júði tengd trúarlegum atburðum kristinna manna séu merki um and-semitisma. Þetta er auðvitað heimskuleg nálgun og ekkert annað en ofstæki og skortur á skilningi og umburðarlyndi gagnvart kristinni trú og menningu. Auðvitað er svona ekkert annað en til skammar fyrir mann sem telur sig menntaðann.
Í raun og veru hefur Ómar Ragnarsson hárrétt fyrir sér í ofangreindri tilvitnun:
Ýmis sagnfræðileg atriði eru þess eðlis, að aðalatriðin eru ljós og skýr og ofast afar langsótt að fara að leita að öðrum atriðum til að gera þau að aðalatriðum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
staðreyndir skipta ekki máli heldur skaðin sem er orðin af þessu frumhlaupi. Það er ekki til nein afsökun þar sem þetta hefir skaðað þjóðinna gífurlega oh mun vinda upp á sig um ókomna tíð alveg eins og þegar Merkel og Kæra Eygló buðu öllum velkomin í svit sína á annara kostnað.Það stoppar enginn mannflæði frekar en þjórsá. Mannflæðið mun halda áfram í áraraðir
Valdimar Samúelsson, 21.9.2015 kl. 16:44
Sammála þér, Hallgrímur. Miklar fréttir berast nú af skaða sem orðið hefur af þessu frumhlaupi meirihlutans í Reykjavík.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 21.9.2015 kl. 18:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.