Löggan lokar vegum ađ hćtti Geirs og Grana
6.8.2014 | 08:48
Undarlegt er ţađ međ lögregluna. Hún virđist á sumum sviđum ekki kunna til verka. Efsta myndin hér til hćgri birtist í Morgunblađi dagsins og hana tók ljósmyndari Morgunblađsins, Eggert Jóhannesson viđ Sólheimajökul. Ţarna stendur lögreglumađur viđ veg sem hefur veriđ lokađur vegna hćttuástands viđ sporđ jökulsins.
Takiđ eftir umbúnađinum. Plast er teipađ um Grettistak og hringađ um einhvers konar járnadrasl sem gegna á hlutverki hliđs. Mikiđ óskaplega er ţetta nú illa gert og ótraustvekjandi.
Ţegar gaus í Eyjafjallajökli og á Fimmvörđuhálsi voru handarbaksvinnubrögđ lögreglunnar nákvćmlega hin sömu.
Nćstu mynd tók ég 23. maí 2010 ţegar enn gaus í Eyjafjallajökli. Ţá var vegurinn inn í Ţórsmörk og Gođaland lokađur og greinilegt ađ hönnunin er álíka gáfuleg og jafn traustvekjandi og á efri myndinni.
Ţegar gaus á Fimmvörđuhálsi og fékk lögreglan ţá flugu í höfuđiđ ađ fólk vilji endilega fara sér ađ vođa viđ glóandi hraun og gjósandi gíga. Af öllum tólum og tćkjum í kjallaranum grípur löggćslan til gula plastborđans.
Pöpullinn hlýđir auđvitađ yfirvaldinu en um síđir fýkur plastiđ fýkur út í veđur og vind ţar sem ţađ finnst löngu síđar.
Ţriđju myndina tók ég á Fimmvörđuhálsi 12. júní 2012, um tveimur mánuđum eftir ađ gosinu ţar lauk. Ţá mátti enn sjá leifar af lögregluborđum. Ţetta er nú ekkert góđ mynd, tekin inni í hraungjótu.
Ţegar fólki dettur í hug ađ mótmćla fyrir framan Alţingishúsiđ eđa sendiráđ Bandaríkjanna viđ Laufásveg í Reykjavík eru settar upp heljarinnar grindur. Ţćr eiga ađ halda fólki öđru megin en lögreglu og heldra fólki hinum megin. Enginn má fara yfir nema forsetafrú.
Ţetta eru rammgerđar grindur enda óvissan međ mannlega hegđan allt önnur og ófyrirsjáanlegri en veseniđ í náttúrunni.
Ţegar eldgos verđa eđa vatn spýtist undan jökulsporđum stendur löggan upp af hvíldarbekkjum sínum, klćđist skotheldum vestum og gengur vasklega ađ verkum, rétt eins og Geir og Grani í Spaugstofunni - og lokar vegum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.